Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skíðaparadísin í Hlíðarfjalli Í Hlíðarfjalli er sannkölluð skíðaparadís rétt við bæjardyrnar. Þar eru frábærar aðstæður til að skíða- og snjóbrettaiðkunnar. Lyfturnar á svæðinu geta samanlagt flutt 4,440 manns á klst. en samfelldur hæðarmunur á skíðabrekkunum er um 500 metrar. Nánari upplýsingar um veður og færi er að finna HÉR og einnig í símsvara 878 1515.
Á dagskrá VH 2010 er að finna viðburði sem ná yfir flestar íþróttagreinar þar sem snjór og útivist eru í aðalhlutverki. Hlíðarfjall skipar stóran sess í hátíðinni þar sem hefðbundin skíði, gönguskíði, telemarkskíði og snjóbretti verða í aðalhlutverki hvort heldur er í keppnum eða einfaldlega sem ljúf dægradvöl fyrir alla. Dagskrána er að finna HÉR.
Ærslafullur leikur um dekraðan glaumgosa sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar en sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur. Sjá nánar HÉR.

Mikið framboð er af afþreyingu á Akureyri yfir vetrartímann sem á sumrin. Það er því kjörið fyrir alla þá sem vilja láta sér líða vel og upplifa eitthvað skemmtilegt að skella sér norður. Smelltu HÉR til að skoða samantekt um ýmislegt sem viðkemur afþreyingu, þjónustu og skemmtun í bænum.