Visithaus_Listagil2

Afþreying og útivist

Fokus_Adventa09

AÐVENTUÆVINTÝRI 2009

Aðventan er einstakur tími. Þá lifna jólaljósin um borg og bý, fólk er í önnum að undirbúa sig fyrir hátíðarnar en gefur sér jafnframt tíma til að njóta þeirra viðburða sem í boði eru og einkenna árstímann. Aðventuævintýri á Akureyri hefur fest sig í sessi með þéttri dagskrá viðburða fyrir alla fjölskylduna. Höfum það huggulegt og njótum aðventunnar saman.

Lesa meira..
 
Akureyri_feb2005_6

Afþreying og opnunartímar veturinn 2009-2010

Mikið framboð er af ýmiskonar afþreyingu á Akureyri yfir sumarið auk fjölda viðburða af ýmsum toga.

Lesa meira..
 
HuniII

Bátsferðir

Tvö fyrirtæki bjóða upp á siglingar frá Akureyri, Húni II og Haffari. Í boði eru fastar ferðir yfir sumarið en einnig er hægt að panta sérferðir samkvæmt samkomulagi. Lesa meira..
 
17juni07_13

Börn og afþreying

Á Akureyri er að finna fjöldan allan af leiksvæðum, leikvöllum og sparkvöllum. Sundlaug Akureyrar, Andapollurinn fyrir neðan Sundlaug Akureyrar og Lystigarðurinn eru vinsælir viðkomustaðir. Kjarnaskógur, helsta útivistasvæði bæjarins, býður upp á spennandi möguleika, leiktæki, stíga. Lesa meira..
 

Ferðafélag Akureyrar

Ferðafélag Akureyrar (FFA) var stofnað árið 1936 . Það er sjálfstæð deild í Ferðafélagi Íslands, sem þýðir að félagsmenn njóta allra sömu réttinda og félagar FÍ.

Lesa meira..
 
Fjorhjol

Fjórhjólaferðir

Á Draflastöðum, í um 20 mínútna akstri frá Akureyri eru í boði ýmiskonar ferðir á fjórhjólum. Allar ferðirnar fela í sér kennslu og leiðbeiningar á hvernig á að aka hjólunum, svo og kynningu á öryggisatriðum. Lesa meira..
 
Kolla með unga

Fuglaskoðun

Margir góðir staðir eru til fuglaskoðunar á Akureyri og næsta nágrenni bæjarins og er búið að koma fyrir fuglaskoðunarhúsum á fjórum stöðum innan sveitarfélagsins. Þessi svæði eru Naustaborgir, Krossanesborgir, óshólmar Eyjafjarðarár og í Hrísey.

Lesa meira..

 
Glerardalur

Glerárdalshringurinn 24x24

Áhugamannafélag sem stendur fyrir gönguferðum allt árið og skipuleggur gönguna "Glerárdalshringurinn 24x24 í júlí ár hvert. Lesa meira..
 
arcticopen_2006

Golfvöllur Akureyrar Jaðri

Á Akureyri er nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi, Jaðarsvöllur. Þar er árlega haldið golfmót sem er einstakt í sinni röð og nefnist Arctic Open. Lesa meira..
 

Gönguferðir með leiðsögn

Lifandi leiðsögn um innbæ Akureyrar. Gengið er frá kirkjutröppunum við Hótel KEA og inn í elsta hluta bæjarins að Minjasafninu eða rúm 1.5 km. Sagt er frá þróun bæjarins, markverðum stöðum og frásögnum.
Lesa meira..
 
ferdamenn

Gönguleiðir á Akureyri

Í bænum má fínna fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir. Hér er hægt að nálgast kort með helstu leiðunum. Lesa meira..
 

Gönguvikur í Eyjafirði

Göngugarpar og annað útivistarfólk kemst í skipulagðar gönguferðir um Eyjafjörð í nánast allt sumar. Ferðafélag Akureyrar og fleiri aðilar í firðinum bjóða upp á alls kyns forvitnilegar ferðir með leiðsögn og hafa verið skipulagðar sérstakar gönguvikur á svæðinu. Skoðið dagskrána hér. Lesa meira..
 
Þemavika í Hlíðarskóla

Hestaleigur

Tvær hestaleigur eru í nágrenni Akureyrar. Hestaleigan Kátur sem er í 5 mínútna akstri frá miðbænum, sérhæfir sig í styttri ferðum meðfram Eyjafjarðaránni. Pólar Hestar sem er í um 20 mínútna akstri frá miðbænum býður upp á styttri og lengri ferðir um sveitir og óbyggðir. Lesa meira..
 
viking_hjolaleiga

Hjólreiðar og reiðhjólaleiga

Akureyri hentar mjög vel til hjólreiða enda eru fjölmargir leiðir og stígar í boði. Má þar m.a. nefna leiðina meðfram Glerá, í Naustaborgum og í Kjarnaskógið. Reiðhjólaleiga er í miðbæ Akureyrar. Lesa meira..
 
Hlíðarfjall - ný lýsing í Suðurbakka

Hlíðarfjall

Í Hlíðarfjalli er sannkölluð skíðaparadís rétt við bæjardyrnar. Þar eru frábærar aðstæður til að skíða og snjóbrettaiðkunnar. Lyfturnar á svæðinu geta samanlagt flutt 4,440 manns á klst. en samfelldur hæðarmunur á skíðabrekkunum er um 500 metrar.

Lesa meira..
 
IcelandicOutback

Jeppaferðir

Icelandic Outback sérhæfir sig í dagsferðum frá Akureyri um óbyggðir og hálendi Íslands. Fyrirtækið tekur einnig að sér ferðir með smærri hópa, t.d. vegna árshátíða, óvissuferða og þess háttar.

Lesa meira..
 
Jolagardurinn_sumar

Jólagarðurinn

Jólagarðurinn er sannkölluð töfraveröld jólanna aðeins tíu mínútna akstur frá miðbæ Akureyrar. Verslun með jólavörur, garður og nestisbekkir. Opið allt árið. Lesa meira..
 
Akureyri_6des05_3

Kaldbaksferðir

Með Kaldbaksferðum er hægt að komast í lengstu skíðabrekku landsins, farið er upp á Kaldbak sem er 1174 metrar á hæð og býður upp á ótrúlegt útsýni í góðu veðri. Farið er upp á fjallið með snjótroðara. Síðan er hægt að fara niður á skíðum, bretti, gangandi eða aftur með snjótroðaranum. Lesa meira..
 
Keila

Keilan Akureyri

Í salnum eru átta brautir. Opið er í Keilunni og Kaffi Jónsson alla daga frá kl. 11.00 til 23.30. Lesa meira..
 

Kjarnaskógur útivistarsvæði

Fjölbreytt útivistarsvæði með alhliða möguleikum til hollrar útivistar. Í Kjarnaskógi eru upplýstar trimmbrautir og göngustígar. Lesa meira..
 
Sjostangaveidi

Sjóstangaveiði - Haffari

Í boði eru tvær ferðir daglega með Haffara frá miðjum maí fram í miðjan september. Ferðirnar sem eru um þriggja tíma langar (skoðunar- og sjóstangarferðir) fara frá Torfunesbryggju við miðbæ Akureyrar. Lesa meira..
 
Skautahollin_jan2005

Skautahöllin á Akureyri

Skautafélag Akureyrar var stofnað 1. janúar 1937. Félagið hefur það að markmiði að efla skautaíþróttina og rekur nú hina nýju og glæsilegu Skautahöll á Akureyri. Hægt er að fá leigða skauta á svæðinu og einnig er þar starfrækt sjoppa. Lesa meira..
 
sba

Skoðunarferðir með rútu

Skoðunarferðir SBA-Norðurleiðar um Norðurland eru löngu heimsþekktar. Nægir þar að nefna dagsferð í Mývatnssveit með leiðsögn sem hefur verið farin um áratugaskeið. Lesa meira..
 
Skotfimi

Skotfélag Akureyrar

Í félaginu eru yfir 250 félagsmenn sem ýmist eru skotíþróttamenn eða veiðimenn. Æfingasvæði félagsins og félagshús er að finna í Glerárdal. Farið er upp Hlíðarfjallsveginn og afleggjari til vinstri við Hlíðarenda tekinn.

Lesa meira..
 
Sjobleikjur_Sveinn

Stangaveiðifélag Akureyrar

Stangaveiðifélag Akureyrar selur veiðileyfi í ýmsar ár á Norðurlandi og heldur uppi öflugu félagsstarfi yfir vetrartímann. Af ársvæðum sem félagið hefur til ráðstöfunar má nefna Hofsá í Skagafirði, Ólafsfjarðará, Svarfaðardalsá, Hörgá, Reykjadalsá, Mýrarkvísl og Brunná. Lesa meira..
 
Sundlaug2

Sundlaugar á Akureyri og í Hrísey

Tvær sundlaugar eru á Akureyri. Sundlaug Akureyrar er með tvær laugar auk  tveggja rennibrauta, busllaug, innilaug, fjóra heita potta, eimbað, gufubað, ljósalampa og fjölskyldugarð. Glerárlaug er innilaug og á útisvæði laugarinnar eru tveir heitir nuddpottar og vaðlaug auk útkilefa.

Lesa meira..
 
Myflug

Útsýnisflug

Mýflug og Norlandair starfrækja útsýnisflug frá Akureyrarflugvelli og bjóða upp á fjölbreytt úrval útsýnisferða um norðurland auk ferða til Grímseyjar.
Lesa meira..
 


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica