Sundlaugar á Akureyri og í Hrísey
Sundlaug Akureyrar
Þingvallastræti 21, 600 Akureyri
Sími: 461 4455
Fax: 461 4460
Netfang: sund@akureyri.is
Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís á heimsmælikvarða fyrir alla fjölskylduna. Sundlaugarnar eru tvær. Á svæðinu er að finna tvær 25 metra útilaugar og 12,5 metra innilaug. Í boði eru tvær rennibrautir, busllaug, þrír heitir pottar úti og einn innipottur, eimbað og gufubað.
Sérstakir karlatímar eru í gufubaðið á miðvikudögum kl. 15-21 og föstudögum kl. 14-21og kvennatímar þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15-21. Á öðrum tímum er hægt að panta tíma í gufuna.
Á sumrin er rekinn fjölskyldugarður með fjölbreyttum tækjum fyrir yngri kynslóðina á sundlaugarsvæðinu. Þar má meðal annars finna trambolín, hoppidýnu, rafmagnsbíla, rafmagnsgröfu, minigolf og ýmiss önnur spennandi leiktæki.
Afgreiðslutími Sundlaugar Akureyrar:
Vetur (1.9 -31.5)
Mánudaga til föstudaga 6:45-21:00
Laugardaga og sunnudaga 10:00-18:30
Ath. sundlaugin er lokuð 25.12, 26.12, 1.1, 1.5 og 17.6.
Sundsvæðið nýtur mikilla vinsælda hjá heimamönnum og ferðamönnum og er með vinsælustu viðkomustöðum ferðamanna á Akureyri.
Verðskrá fyrir Sundlaug Akureyrar:
| Fullorðnir | 450 | |||
| Börn (0-15 ára) | 0 | |||
| Gufubað | 650 | |||
| Handklæði | 450 | |||
| Sundföt | 450 | |||
| 10 miða kort fyrir fullorðna | 3.700 | |||
| 5 miðar gufa | 3.000 | |||
| Skólakort (30 skipti) | 6.800 | |||
| 12 mánaða kort (Gildir fyrir allar laugar Akureyrarbæjar) | 35.000 | |||
| 6 mánaða kort (Gildir fyrir allar laugar Akureyrarbæjar) | 21.000 | |||
| 3 mánaða kort (Gildir fyrir allar laugar Akureyrarbæjar) | 11.000 | |||
Glerárlaug
Höfðahlíð
Sími: 462 1539 / 898 7326
Netfang: sportgler@akmennt.is
Glerárlaug er frábær innilaug sem hentar vel til sundkennslu barna og unglinga,auk allra annara kosta sem innilaugar hafa upp á að bjóða.
Á svæðinu eru einnig tveir heitir nuddpottar og vaðlaug auk útiklefa.
Afgreiðslutími:
Sumar (7.1.-20.8): Mánudaga til föstudaga 6.45-18.30. Lokað um helgar. Vetur (1.9 - 31.5): Mánudaga til föstudaga 6.45-08.00 og 17.30 -21.00. Laugardaga og Sunnudaga 9.00-14.30.
Verðskrá fyrir Glerárlaug:
| Fullorðnir | 350 | |||
| Börn (0-15 ára) | 0 | |||
| Handklæði | 450 | |||
| Sundföt | 450 | |||
| 10 miða kort fyrir fullorðna | 2.900 | |||
| Skólakort (30 skipti) | 3.900 | |||
| 12 mánaða kort (Gildir fyrir allar laugar Akureyrarbæjar) | 35.000 | |||
| 6 mánaða kort (Gildir fyrir allar laugar Akureyrarbæjar) | 21.000 | |||
| 3 mánaða kort (Gildir fyrir allar laugar Akureyrarbæjar) | 11.000 | |||
Íþróttamiðstöðin í Hrísey, sundlaug og líkamsrækt
Austurvegi 5
Sími: 461 2255
Í Hrísey er ný og góð sundlaug fyrir alla aldurshópa með sérstakri barnalaug og heitum potti.
Afgreiðslutími:
Sumar (1.6 - 31.8)
Mánudaga til föstudaga 8.30-18.30
Laugardaga og sunnudaga 10.30-18.00
Vetur (1.9 - 31.5)
Þriðjudaga og fimmtudaga 14.00 - 20.00
Miðvikudag og föstudagur 14.00 - 18.00
Laugardagur 13.00 - 16.00
Lokað mánudaga og sunnudaga
Ath. sundlaugin er lokuð 25.12, 26.12, 1.1, 1.5, 17.6 og Frídag verslunarmanna.
Verðskrá fyrir sundlaugar í Hrísey og Grímsey:
| Fullorðnir | 350 | |||
| Börn (0-15 ára) | 0 | |||
| Handklæði | 450 | |||
| sundföt | 450 | |||
| 10 miða kort fyrir fullorðna | 2.900 | |||
| 12 mánaða kort (Gildir fyrir allar laugar Akureyrarbæjar) | 35.000 | |||
| 6 mánaða kort (Gildir fyrir allar laugar Akureyrarbæjar) | 21.000 | |||
| 3 mánaða kort (Gildir fyrir allar laugar Akureyrarbæjar) | 11.000 | |||
Íþróttamiðstöðin í Hrísey er fjölnota íþróttamiðstöð sem býður upp á tækjasal til líkamsræktar og íþróttasal 12x20m þar sem hópar geta leigt tíma. Þar er fundarsalur fyrir minni fundi auk þess sem íþróttasalurinn er leigður út fyrir fundi og samkomur.

