Afþreying og útivist
HuniII

Bátsferðir

Húni II

Pósthólf 401
602 Akureyri
Sími: 848 4864
Tölvupóstur: steinipje@simnet.is
Netfang: www.huni.muna.is

Skipulagðar ferðir eru í boði með bátnum Húna II yfir sumartímann á fimmtudögum og föstudögum (frá lok júní fram í miðjan ágúst): Ferðirnar eru frá 1.5 - til 5 klukkustunda langar.

Sögusigling

Þessi vinsæla ferð er í boði á föstudagskvöldum í sumar. Áhugaverð ferð með leiðsögumanni, fyrir þá sem hafa gaman af að fræðast um þróun bæjarins, staðhætti og veiðiaðferð fyrr og nú. Fræðslu og fróðleiksferð. Siglt um innanverðan fjörðinn. kl. 20.00 (uþb 1.5 klst).
Dagsetningar og tímar:
26.júní, 3.júlí, 10.júlí, 17.júlí, 31.júlí, 14.ágúst. Brottför frá Torfunefi klukkan 20:00
Verð (2009):
Fullorðnir, 16 ára og eldri, kr. 1000.
Frítt fyrir börn og 67 ára og eldri.
 

Eyfirski söguhringurinn

Ferðin hefst á Akureyri og ekið til Gása. Á Gásum eru einar merkustu miðaldaminjar sem til eru á Íslandi en þar var kaupstaður allt fram á 16. öld. Þaðan er farið til Möðruvalla eins merkasta söguseturs á landinu og höfuðstað Norðurlands á öldum áður. Þar taka heimamenn á móti okkur, sýna okkur kirkjuna og segja okkur ágrip af sögu staðarins. Ferðin heldur áfram frá Möðruvöllum, til Arnarness þar er gallerý og sveitamarkaður auk þess sem ýmislegt þjóðlegt verður þar til sýnis. Ferðin endar á Hjalteyri sem er gamalt lítið síldarþorp. Þar var reist 1937 stærsta síldarverksmiðja sem þá hafði verið byggð í heiminum. Á Hjalteyri standa uppgerð flest gömlu húsin og er eins og að hrökkva aftur í tíman að koma þangað. Þar er í gömlu verksmiðjunni listasýningar á vegum Verksmiðjunnar menningarhúss. Eftir súpu og brauð á Hjalteyri er farið um borð í Húna II, sem siglir með hópinn til Akureyrar.

Dagsetningar og tímar:

Lagt er af stað frá Akureyri hjá Upplýsingamiðstöð ferðamála, Hafnarstræti 82, kl. 14:00 og komið við m.a. á Gásum kl. 14.20 og Möðruvöllum kl. 15.00. Komið til Hjalteyrar kl. 18.00 og farið þaðan með Húna II kl. 19.00 með komu til Akureyrar á milli 20.00 – 20.30 (Torfunefsbryggju).

Ferðin er í boði eftirtalda daga: 27.júní, 4.júlí, 11.júlí, 18.júlí, 25.júlí, 8.ágúst 2010. Þar að auki siglir Húni til Hjalteyrar á Sæludaginn í sveitinni 31.júlí.

Verð: (2010)

fullorðnir 6.500 kr, 13-18 ára 4.000 kr, 12 ára og yngri 1.200 kr

Innifalið er rútuferðin með leiðsögn, leiðsögn um Gásir, Möðruvelli og á Hjalteyri sem og súpa og brauð á Hjalteyri

Upplýsingar og pantanir í síma 8963569 ttv@ttv.is, eða hjá Húna II í síma 8484864 & 6991950 steinipje@simnet.is

Aðrar ferðir:

Í sumar er boðið upp á viðburðasiglingar og sérferðir með hópa. Báturinn tekur allt að 100 farþega. Brottför frá Torfunesbryggju við miðbæ Akureyrar. 
Nánari upplýsingar, fyrirspurnir og bókanir eru í síma 848 4864.

(Ljósmynd af Húna: Þorgeir Baldursson).

  

Sjóstangaveiði - Haffari

Haffari ehf
Sími: 860 3890
Tölvupóstur: sigurdur@haffari.is
Netfang: www.haffari.is


Ferðir með Haffara, sjá nánari upplýsingar undir sjóstangaveiði eða hér.


 

Senda grein



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica