Afþreying og útivist

Gönguvikur á Akureyri og nágrenni

Göngugarpar og annað útivistarfólk kemst í skipulagðar gönguferðir um Eyjafjörð í nánast allt sumar. Ferðafélag Akureyrar og fleiri aðilar í firðinum bjóða upp á alls kyns forvitnilegar ferðir með leiðsögn og hafa verið skipulagðar sérstakar gönguvikur á svæðinu. Skoðið dagskrána hér að neðan.


Dagskrá 2010

Gönguvika Ferðafélag Akureyrar: Giljaferðir

7. – 11. júní 2010    

Fararstjórar: Frímann Guðmundsson/Konráð Gunnarsson Brottför frá skrifstofu Ferðafélags Akureyrar (FFA), Strandgötu 23, Akureyri, kl. 19.00. Stuttar tveggja til þriggja klukkustunda kvöldgöngur við flestra hæfi. Verð: Frítt

7. júní Mánudagur

Reyká í Eyjafirði 

8. júní Þriðjudaginn

Fossá í Hörgárdal 

9. júní Miðvikudaginn

Torfugil 

10. júní Fimmtudaginn

Þverárgil 

11. júní Föstudaginn

Stóralækjargil í Öxnadal   

Gönguvika á Akureyri og nágrenni

3. – 11. júlí 2010  

Gönguferðirnar eru á vegum ýmissa aðila á Akureyri og nágrenni. Hægt er að nálgast ýtarlegri upplýsingar hjá þeim aðilum sem skipuleggja hverja göngu fyrir sig.  

3. júlí Laugardagur

Þorvaldsdalsskokkið. Göngumenn mæti við Fornhaga í Hörgárdal kl. 9.00, skokkarar kl. 12.00

4. júlí Sunnudagur

Glerárdalur - Skjóldalur  Ferðafélag Akureyrar
Gengið er frá enda Súluvegar við heimari Hlífá sem leið liggur eftir stikaðri leið inn að Lamba þar sem gott matarhlé verður. Eftir matinn verður haldið áfram upp Glerárdal yfir Þröskuld í Ytri-Króksdal og niður í Skjóldal alla leið að Ystagerði þar sem ferðin endar. Fararstjóri: Ingimar Eydal. Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000 Brottför frá FFA kl. 8.00

5. júlí Mánudagur 

Súlur frá Hömrum. Mæting við bílastæðið á Hömrum kl. 18.00.
Farið á Ytri og Syðri Súlu, áætlaður ferðatími í heild er um 5 tímar. Verð kr. 3000 / 1000 fyrir yngri en 16 ára sem verða að vera í fylgd fullorðinna. Nánari upplýsingar á vef naturalis  

6. júlí Þriðjudagur

Ystuvíkurfjall Ferðafélag Akureyrar kl. 19.00.
Verð: frítt , (þeir sem fá far ættu að borga bílstjóranum 500 kr.) og þetta eru ferðir upp á ca. 3 tíma.

7. júlí Miðvikudagur

Skólavarða Ferðafélag Akureyrar kl. 19.00.
Verð: frítt , (þeir sem fá far ættu að borga bílstjóranum 500 kr.) og þetta er ferð upp á ca. 3 tíma.

8. júlí Fimmtudagur

Kræðufell,  Ferðafélag Akureyrar kl. 19.00.
Verð: frítt , (þeir sem fá far ættu að borga bílstjóranum 500 kr.) og þetta er ferð upp á ca. 3 tíma.

9. júlí Föstudagur

Hlíðarfjall, Ferðafélag Akureyrar kl. 19.00.
Verð: frítt , (þeir sem fá far ættu að borga bílstjóranum 500 kr.) og þetta er ferð upp á ca. 3 tíma.

10. júlí Laugardagur - Glerárdalshringurinn - 24 tindar.

Glerárdalshringurinn er stór og umfangsmikill fjallgönguviðburður sem genginn er árlega í júlí, með um 10 fjöll hærri en 1400 m og er Kerling hæst þeirra um 1540 m, gengið er á 24 tinda um 45 km leið með um 4500 m gönguhækkun. Reikna má með um 20 til 28 klst. í gönguna.  Allar nánari upplýsingar m.a. varðandi skráningarfrest má finna á vefsíðu göngunnar 24x24.is undir Hringurinn.

11. júlí Sunnudagur

Fuglaskoðunarferð Hrísey.
Mæting við Hús Hákarla Jörundar kl. 14.00. Gangan tekur um 1.5 klst.
Leiðsögumaður: Þorsteinn Þorsteinsson. Verð: kr 1000
(T.d. hægt að taka ferjuna frá Árskógsandi kl. 13.30 og tilbaka kl. 17.00)

 

Gönguvika á Akureyri og nágrenni

31. júlí – 8. ágúst 2010  

Gönguferðirnar eru á vegum ýmissa aðila á Akureyri og nágrenni. Hægt er að nálgast ýtarlegri upplýsingar hjá þeim aðilum sem skipuleggja hverja göngu fyrir sig.  

31. júlí Laugardagur

Blástakkur, 1379m, Ferðafélag Akureyrar.
Upphaf göngunnar er við Féeggsstaði í Barkárdal. Farið er yfir Barká á göngubrú og gengið fram Féeggsstaðadalinn þar til áin skiptist við Féegg. Er þá farið yfir í tunguna og gengið upp Féeggina þar til komið er upp úr dalnum í um 1200 m hæð. Er þá lagt á fjallið sem er 1379 m. Stórbrotið útsýni yfir fjallasalinn og til Kolbeinsdals, Skíðadals og Barkárdals. Gengið til baka um Barkárdal að Baugaseli. Fararstjóri: Konráð Gunnarsson. Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000, Brottför frá FFA kl. 8.00.

6. ágúst Föstudagur

Þverbrekkuvatn í Öxnadal 400 m hæð, 3 tíma ganga.  Ferðafélagið Hörgur. Mæting kl. 17.00 við Þelamerkurskóla þar sem sameinast er í einkabíla.

7. ágúst Laugardagur

Grænavatn í Hörgárdal. 780 m hæð, 5 tíma ganga. Ferðafélagið Hörgur. Mæting kl. 10.00 við Þelamerkurskóla þar sem sameinast er í einkabíla.

8. ágúst Sunnudagur

Hraunsvatn í Öxnadal. 500 m hæð, 4 tíma ganga. Ferðafélagið Hörgur.Mæting kl. 10.00 við Þelamerkurskóla þar sem sameinast er í einkabíla.

Senda grein



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica