Beint í leiðarkerfi vefsins.
Akureyrarkirkja var vígð árið 1940. Kirkjan var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni, þáverandi húsameistara ríkisins.
Grímsey er græn, grösug og einstaklega gjöful eyja: Útvörðurinn í norðri með auðug fiskimið og litríkt fuglalíf. Frægust er Grímsey trúlega í hugum ferðamanna fyrir heimskautsbauginn og kemur fólk gjarnan langa leið, til þess eins að stíga norður fyrir baug.
Lesa meira..
Eitt af höfuðprýðum Akureyrar eru gömul hús. Í Innbænum og Fjörunni er að finna elstu hús bæjarins sem flest eru byggð á árunum 1800-1900. Mörg þeirra eru friðuð samkvæmt lögum.
Lesa meira..
Mynstrað munngæti er verkefni sem að snýr að mynsturgerð í íslenskri matarhefð. Vissir þú að íslenskt laufabrauð er einstakt í heiminum? Laufabrauð þróaðist á íslenskum heimilum þegar takmarkað mjöl var til og þjóðin nýtti hugvit og handverk til að skapa list úr litlu.
Lesa meira..
Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís á heimsmælikvarða fyrir alla fjölskylduna. Sundlaugarnar eru tvær. Á svæðinu er að finna tvær rennibrautir, busllaug, innilaug, fjóra heita potta, eimbað, gufubað, ljósalampa og fjölskyldugarð með vinsælum leiktækjum sem er opinn yfir sumartímann.
Lesa meira..