Kjarnaskógur
Skógræktarfélag Eyfirðinga
Kjarnaskógur
IS-600 Akureyri
Sími: 462 4047
Netfang: kjarni@est.is
Heimasíða: www.kjarnaskogur.is
Kjarnaskógur er eitt vinsælasta útivistarsvæði Akureyringa, um 800 hektara að stærð. Við upphaf skógræktar á svæðinu um 1950 var landið skóglaust með öllu. Síðan þá hefur verið plantað um 1.5 milljónum plantna og er þar mikil gróðursæld og gott skjól.
Í skóginum má m.a. finna:
*Tvö leiksvæði með fjölda leiktækja
* Blakvöll
*Yfirbyggða grillaðstöðu sem hentar jafnt einstaklingum sem hópum
*Stærsta skipulagða gönguskíðasvæði landsins (í skóglendi) með allt að 20 km troðnum brautum, þar af eru 6 km upplýstir
*Fyrstu sérhönnuðu fjallahjólabraut landsins
*Um 12 km af malarbornum stígum, þar af eru 6 km upplýstir, auk fjölda annarra skógarstíga.
*Snyrtingar og vatnsbrunn
Svæðið er í eigu Akureyrarbæjar en í umsjá Skógræktarfélags Eyfirðinga.

