Áhugaverðir staðir
Sundlaug2

Sundlaug Akureyrar

Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís á heimsmælikvarða fyrir alla fjölskylduna. Sundlaugarnar eru tvær. Á svæðinu er að finna tvær rennibrautir, busllaug, innilaug, fjóra heita potta, eimbað, gufubað, ljósalampa og fjölskyldugarð með vinsælum leiktækjum sem er opinn yfir sumartímann.

Sundsvæðið nýtur mikilla vinsælda hjá heimamönnum og ferðamönnum. Árið 2006 komu 342.560 gestir í Sundlaug Akureyrar, eða 7.362 fleiri en árið 2005. Þetta er þriðja besta árið síðan 1996.

  • Opnunartímar: Virkir dagar frá 7.00-21.00. Um helgar frá 8.00-18.30.
  • Heimilisfang: Þingvallastræti, 600 Akureyri
  • Sími: 461 4455
  • Fax: 461 4460
  • Netfang: sund@akureyri.is

Senda grein



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica