Áhugaverðir staðir
Gásir tjaldverslun

Gásir

Gásir við Hörgárósa
Netfang: ksb@akmus.is
Veffang:
www.gasir.is

Gásir við Eyjafjörð eru einstakur staður 11 km norðan við Akureyri. Gásakaupstaður, verslunarstaður frá miðöldum eru friðlýstar fornleifar í umsjón Fornleifaverndar ríkisins.
Á staðnum má sjá einstakar rústir þessa forna kaupstaðar sem var við lýði allt frá 12. öld og jafnvel allt að því að verslun hófst á Akureyri á 16. öld. Ár hvert í júlímánuði eru haldnir miðaldardagar að Gáum þar sem gestum svæðisins er gefið færi á að skyggnast inní lífs- og starfshætti fólks á síðmiðöldum. Söngvarar, dönsk kaupmannsfjölskylda og stór hópur handverksmanna og fjölskyldur íklæðast miðaldalegum fötum við störf og leik. Nánari upplýsingar um sögu, náttúru staðarins og miðaldadagana má finna á
www.gasir.is



Senda grein



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica