Líkamsrækt, sund, dekur

Abaco

Abaco heilsulind

Abaco er ein best búna heilsulind landsins og býður upp á margþætta þjónustu. Þar starfa nuddarar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingur, sjúkraliði og sjúkraþjálfari. Lesa meira...
 
AquaSpa

Aqua Spa

Aqua Spa er nudd- og snyrtistofa og býður upp á allar helstu nudd og snyrtimeðferðir. Í aqua Spa starfa 4 snyrtifræðingar og 8 nuddarar. Í Aqua Spa er boðið upp á sjúkranudd og þar starfar einnig Kírópraktor.

Lesa meira...
 
Atak

Átak heilsurækt

Átak er stærsta líkamsræktarstöðin á landsbyggðinni og glæsileg í alla staði. Átak er við Strandgötu 14, en húsið er byggt út í sjó og er útsýnið því mikið og fallegt. Húsið er 1.500 fm að stærð og öllum þægindum búið.

Lesa meira...
 
Harogheilsa

Hár & heilsa

Hár&Heilsa er samheiti fyrir nudd- og snyrtistofuna Betri líðan og hárgreðslustofuna Strukturu. Hár & heilsa er í miðbæ Akureyrar í sama húsi og Sjallinn. Betri líðan er elsta starfandi nudd- og snyrtistofa Akureyrar, stofnuð 17. júní 1986.

Lesa meira...
 
Heilsukjarninn_gufa

Heilsukjarninn

Heilsukjarninn er í húsakynnum Sundlaugar Akureyrar. Þar starfa nuddarar, heilari og hómópati. Boðið er upp á hefðbundið heilsunudd, heilun og viðtöl hjá hómópata, en að auki er tekið við hópum í slökun í innisundlauginni og indíánagufu sem er um tveggja klukkustunda meðferð með ýmsum gjörningum.

Lesa meira...
 
Bjarg1

Líkamsræktin Bjarg

Á líkamsræktarstöðinni Bjargi eru þrír 12 manna heitir pottar, stórt eimgufubað úti og saunaböð í báðum klefum. Snyrtiaðstaðan er glæsileg, sem og tækjasalurinn og hóptímasalirnir. Hópar geta fengið heilsueflingardaga á Bjargi; það felst í kennslu í líkamsrækt, matreiðslukennslu, slökun og nuddi við pottinn.

Lesa meira...
 
Lind_snyrtistofa

Snyrtistofan Lind

Á Snyrtistofunni Lind er boðið upp á andlitsböð, litun og plokkun með heitsteinanuddi, fótsnyrtingu, handsnyrtingu, vaxmeðferðir, förðun, gervineglur og Tattoo. Einnig eru í boði öll helstu nudd: Slökunarnudd, heilsunudd, sogæðanudd, meðgöngunudd, ilmolíunudd og partanudd.

Lesa meira...
 
Sundlaug2

Sundlaugar á Akureyri og í Hrísey

Tvær sundlaugar eru á Akureyri. Sundlaug Akureyrar er með tvær laugar auk  tveggja rennibrauta, busllaug, innilaug, fjóra heita potta, eimbað, gufubað, ljósalampa og fjölskyldugarð. Glerárlaug er innilaug og á útisvæði laugarinnar eru tveir heitir nuddpottar og vaðlaug auk útkilefa.

Lesa meira...
 
VitaLiberta

Vita Liberta

Notaleg snyrtistofa í Þorpinu og eina snyrtistofan í bænum sem vinnur með lífrænar vörur dr. Hauschka. Þar starfa þrír snyrtifræðingar, þar af meistari og fótafræðingur, sem bjóða upp á alla alhliða snyrtingu. Góð bílastæði.

Lesa meira...
 


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica