Beint í leiðarkerfi vefsins.
Akureyrarvaka er bæjarhátíð sem haldin er þann laugardag sem næst liggur afmæli Akureyrarbæjar, 29. ágúst. Hátíðin markar jafnframt lok Listasumars, listahátíðar sem stendur frá Jónsmessu til ágústloka.
Lesa meira..
Amtsbókasafnið er eitt stærsta almenningsbókasafn landsins. Það er til húsa í glæsilegri byggingu við Brekkugötu 17 og er tilvalið að heimsækja það þó ekki væri til annars en að skoða húsakynnin.
DaLí Gallery er staðsett í miðbæ Akureyrar rétt við Ráðhústorg. Galleríið var opnað 2006 og hefur boðið upp á metnaðarfullar sýningar.
Lesa meira..
Ættingjar Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi ánöfnuðu Akureyrarbæ húsið í Bjarkastíg 6 sem skáldið byggði og bjó í til dauðadags 1964. Á efri hæð hússins er íbúð hans varðveitt eins og hann skildi við hana. Þar er geysimikið bókasafn.
Lesa meira..
Festarklettur-listhús er í eigu hjónanna Lilju Sigurðardóttur og Óla G. Jóhannssonar, listmálara.
Lesa meira..
Flugsafn Íslands er staðsett á Akureyrarflugvelli í nýju húsnæði sem um 2100 fermetrar að stærð. Þar inni er að finna fjölbreytt úrval flugvéla og annarra sýningargripa sem tengjast íslenskri flugsögu.
Lesa meira..
Í Friðbjarnarhúsi er sýning á leikföngum í eigu Guðbjargar Ringsted. Leikföngin eru öll frá síðustu öld. Á efri hæð hússins má sjá fundarsal Góðtemplarareglunnar sem gaf Akureyrarbæ húsið eftir að hafa unnið þar gott starf. Húsið er kennt við Friðbjörn Steinsson. Góðtemplarareglan á Íslandi var stofnuð í húsinu.
Lesa meira..
Myndlistarfélagið hefur umsjón með GalleríBOX sem er íslenskt gallerí sem veitir bæði athygli þeirri listræni sköpun sem á sér stað í næsta nágrenni sem og á stærra sviði.
Lesa meira..
Græni hatturinn er bar sem býður upp á fjölbreytt úrval drykkja og lifandi tónlist. Græni Hatturinn er staðsettur á neðri hæð Bláu Könnunnar.
Lesa meira..
Gudmanns Minde, Gamli spítali var reistur árið 1835 og var læknisbústaður til að byrja með. Árið 1872 keypti Friðrik Gudmann kaupmaður húsið. Þetta var fyrsti spítalinn á Akureyri og var húsið upp frá því kennt við minningu hans og nefnt Gudmanns Minde.
Lesa meira..
Iðnaðarsafnið er safn atvinnulífs seinni alda á Akureyri þar sem sérstök áhersla er lögð á iðngreinar og fyrirtæki á því sviði. Sýndar eru vélar, framleiðsluvörur og myndir af fólki að störfum.
Lesa meira..
Jónas Viðar Gallery er staðsett í Listagilinu. Aðalmarkmið Gallerísins er að kynna og sýna myndlist eftir Jónas Viðar ásamt því að standa fyrir sýningum annarra listamanna
Lesa meira..
KUNSTRAUM WOHNRAUM var stofnað af Hlyni Hallssyni og Jan Fehlis árið 1994. Á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur hafa listamenn haldið sýningar síðan.
Lesa meira..
Kvennakór Akureyrar var stofnaður á fyrstu mánuðum ársins 2001 en fyrstu drög að kórnum ná aftur til ársins 1997 þegar hópur kvenna tengdar íþróttafélaginu KA ákvað að stofna blandaðan kór sem syngi aðallega létta dægurtónlist. Illa gekk að fá karlaraddir í kórinn, og var honum þá breytt í kvennakór.
Lesa meira..
Starfsemi Leikfélags Akureyrar er viðamikil. LA setur upp þrjár til fjórar leiksýningar árlega auk þess að standa fyrir komu gestasýninga til Akureyrar.
Lesa meira..
Listasafnið á Akureyri er yngsta listasafnið á landinu og jafnframt það eina sinnar tegundar utan höfuðborgarsvæðisins. Listasafnið á Akureyri leggur áherslu á að virkja sem flesta til þátttöku, að fræða almenning um sjónlistir og efla umræðu um samfélagið, menningu og listir þar sem safnkennsla og fyrirlestrahald skipar stóran sess.
Lesa meira..
Menningarhúsið HOF verður formlega opnað 28. ágúst 2010. HOF verður menningarhús Norðlendinga og í raun allra landsmanna. Það skapar verðugan ramma um menningar- og tónlistarlíf með því að bjóða upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir fjölbreytilega viðburði á sviði tónlistar, leiklistar, danslistar og ráðstefnuhalds.
Lesa meira..
Menningarmiðstöðin í Listagili er í eigu Akureyrarbæjar og heyrir undir menningardeild bæjarins. Forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar hefur aðsetur og skrifstofu í Ketilhúsinu í Listagili.
Lesa meira..
Starfsemi Minjasafnsins á Akureyri er afar fjölbreytt og stendur safnið fyrir fjölmörgum viðburðum auk sýningarhalds. Markmið Minjasafnsins er að safna, varðveita og rannsaka menningarsögulegar minjar, einkum þær sem eru lýsandi fyrir daglegt líf og atvinnuvegi í Eyjafirði.
Lesa meira..
Nonnahús er talið byggt árið 1849. Akureyrarbær á húsið og er þar safn til minningar um rithöfundinn og prestinn Jón Sveinsson, Nonna (1857-1944). Húsið var friðað samkvæmt þjóðminjalögum árið 1978 og er að flestu leyti gott dæmi um elstu timburhúsagerðina.
Lesa meira..
Populus tremula er menningarsmiðja, rekin af sjálfstæðu félagi listamanna úr ýmsum greinum, bæði sem vinnustofa og sem vettvangur menningarviðburða af ýmsu tagi.
Lesa meira..
Í Sigurhæðum er Matthíasarstofa, minningarsafn um Sr. Matthías Jochumsson (1835-1920) en hann lét reisa húsið árið 1903. Þar eru jafnframt til leigu skrifstofuherbergi, búin allri nýjustu tækni og ætluð skáldum og fræðimönnum til skapandi skrifa.
Lesa meira..
Hljómsveitin heldur að jafnaði 5-7 tónleika á hverju starfsári auk skólatónleika í grunnskólum á Norðurlandi.
Lesa meira..