Listasafnið á Akureyri
Kaupvangsstræti 12
IS-600 Akureyri
Sími: 461 2610 / Fax: 461 2969
Netfang: listasafn@akureyri.is
Heimasíða: www.listasafn.akureyri.is
Listasafnið á Akureyri er yngsta listasafnið á landinu og jafnframt það eina sinnar tegundar utan höfuðborgarsvæðisins. Safnið er til húsa við Kaupvangsstræti 12 í Listagilinu svokallaða, hjarta bæjarins, sem einnig gengur undir heitinu Grófargil. Hugmyndin að stofnun listasafns á Akureyri kom upphaflega frá Jónasi Jónssyni frá Hriflu í blaðagrein sem hann skrifaði árið 1960. Þrír áratugir liðu uns hugmyndin um Listasafnið á Akureyri komst aftur í umræðuna og varð hún loksins að veruleika á afmælisdegi bæjarins þann 29. ágúst 1993. Listasafnið á Akureyri er til húsa þar sem áður var Mjólkursamlag KEA, en byggingin er undir sterkum áhrifum frá Bauhaus-skólanum og hinni alþjóðlegu funkis-hreyfingu. Listasafnið á Akureyri er miðpunktur og sameiningartákn þessarar Listamiðstöðvar í Grófargili.
Listasafnið á Akureyri leggur áherslu á að virkja sem flesta til þátttöku, að fræða almenning um sjónlistir og efla umræðu um samfélagið, menningu og listir þar sem safnkennsla og fyrirlestrahald skipar stóran sess. Þá er einnig lögð áhersla á samstarf við erlenda aðila, ekki hvað síst á norðurlöndum. Safnið mun leitast við að setja upp árlega nokkrar metnaðarfullar sýningar til að efla menningarlíf bæjarins, auka við þekkingu, áhuga og efla skilning á sjónlistum.
Opnunartímar:
Opið alla daga frá 12.00-17.00 nema mánudaga.

