Aðventuævintýri á Akureyri
Aðventan er einn blómlegasti og skemmtilegasti tíminn í menningar- og viðburðalífi bæjarins. Allt iðar af lífi þar sem jólatónleikar, aðventutónleikar, sýningar, markaðir, leikhús og matarmenning einkenna bæjarlífið. Akureyrarstofa sér um að taka saman dagskrá undir þessu heiti og er tilgangurinn að gera upplýsingarnar um viðburðina aðgengilega á einum stað og markaðssetja á landsvísu. Markmiðið er að Akureyri verði vinsælasti jólabær landsins þar sem jólainnkaupin fara fram í afslöppuðu andrúmslofti og úrval varnings er fjölbreytt, matarmenning til fyrimyndar og metnaðarfullir og spennandi viðburðir á hverju strái.

