Markvert á Akureyri
Markvert á Akureyri
Akureyri hefur upp á svo margt að bjóða. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir fjölmarga hluti sem við mælum með að gestir skoði þegar þeir dvelja á Akureyri.
- Lystigarðurinn – u.þ.b. 400 íslenskar plöntur auk rúmlega 7500 erlendra tegunda.
- Listasafnið og Listagilið
- Sundlaug Akureyrar
- Húni II - eikarbátur frá 1963 sem er staðsettur við Torfunesbryggju
- Veitingahús – sem bjóða upp á mat úr héraði
- Kjarnaskógur
- Innbærinn - söfn, kirkja og byggingar
- Jaðarsvöllur - nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi
- Glerárgil
- Hrísey - perla Eyjafjarðar
- Akureyrarvaka - uppskeruhátíð Listasumars sem haldin er í lok ágúst ár hvert
- Listasumar - er frá miðjum júní til lok ágústs
- Bjór frá Víking og Kalda - brugghús í héraði
- Brynjuís - í uppáhaldi heimamanna
- Laxdalshús - elsta hús Akureyrar
- Akureyrarkirkja
- Hlíðarfjall
- Huliðsheimar Akureyrar - heimkynni ljósvera, álfa og dverga


