Beint í leiðarkerfi vefsins.
Amts-Café er staðsett í nýrri viðbyggingu Amtsbókasafnsins á Akureyri. Hægt er að fá heita rétti í hádeginu, frá 11:30-14:00, og þeir eru mjög mismunandi. Einnig er hægt að fá salat, bökur og ýmislegt annað góðgæti á vægu verði, ásamt kaffi og kakó.
Lesa meira..
Kaffihús og bakarí. Boðið upp á létta rétti, súpur, smurtbrauð og kökur. Opið frá 7.0 til 18.00 á virkum dögum og 7.0 16.00 um helgar.
Lesa meira..
Bláa Kannan er staðsett í hjarta bæjarins og opnar á morgnana með nýbökuðu brauði. Í hádeginu er boðið upp á súpu og rétt dagsins. Kökur og samlokur eru framreiddar allan daginn ásamt fersku kaffi.
Lesa meira..
Brauðbúðin er bæði bakarí og kaffihús, staðsett í göngugötunni rétt hjá Ráðhústorginu. Þar er auk nýbakaðs brauðs boðið upp á léttar máltíðir í hádeginu, súpu og brauð.
Lesa meira..
Glæsilegt kaffihús við Ráðhústorgið í hjarta bæjarins. Boðið er upp á ljúffengar tertur og létta rétti ásamt fjölbreyttu úrvali af drykkjum.
Lesa meira..
Karólína er í raun tveir staðir í sama húsi í Listagilinu á Akureyri. Annars vegar kaffihúsið Café Karólína og hinsvegar veitingastaðurinn Rub 23. Innangengt er á milli staðanna og einnig yfir í listhúsið Deigluna þar sem gjarnan eru haldnir tónleikar í samvinnu við Karólínu.
Lesa meira..
Græni hatturinn er bar sem býður upp á fjölbreytt úrval drykkja og lifandi tónlist. Græni Hatturinn er staðsettur á neðri hæð Bláu Könnunnar.
Lesa meira..Götubarinn er huggulegur bar í hjarta bæjarins og stendur við Göngugötuna á Akureyri. Innréttingar og útlit staðarins ríma við hina gömlu Akureyri enda má þar sjá ýmsar skírskotanir í liðinn tíma. Mikið úrval bjórtegunda fæst á Götubarnum.
Lesa meira..
Kaffi Akureyri er kaffihús/pub á besta stað í bænum rétt hjá torginu. Staðurinn tekur 105 manns í sæti, en leyfi er fyrir 200 gestum. Boðið er upp á bragðgóðar kökur, girnilega smárétti og kaffi í hinum ýmsu útgáfum.
Lesa meira..
Kristjánskaffi býður upp á nýbakað brauð, kökur og léttar máltíðir. Í hádeginu er boðið upp á rétt dagsins. Kristjánskaffi er staðsett í sama húsnæði og Bónus.
Lesa meira..
Te og kaffi er staðsett í bókabúðinni Pennanum Eymundsson. Í boði er fjölbreytt úrval kaffidrykkja og kökur. Tilvalið er að grípa í tímarit eða bók til að blaða í meðan ljúffengra veitingar er notið.
Lesa meira..