Ísland í blóma
Guðbjörg Ringsted opnar sýninguna "Ísland í blóma" á Café Karólínu laugardaginn 6. mars klukkan 15. Guðbjörg Ringsted útskrifaðist úr MHÍ 1982 og hefur starfað við kennslu og sinnt myndlist síðan þá. Hún hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í allnokkrum samsýningum. Síðasta einkasýning Guðbjargar var í Grafíksafni Íslands síðastliðið haust.
Hún segir um sýninguna á Café Karólínu: "Landið, fjöllin og fossarnir mynda oft ótrúleg munstur. Í verkum mínum leikur íslenskt blómamunstur um fjöll og fossa, jökla og sprænur. Þar sameinast áhugi minn á landinu og þjóðlegum útsaumi. Þetta eru akrýlmálverk á striga og eru þau flest máluð á þessu ári."
Sýningin stendur til föstudagsins 2. apríl og allir eru velkomnir.
Café Karólína // Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755.

