vidburdir_juni
Allt - viðburðir
  • 6.3.2010 - 2.4.2010

Ísland í blóma

Guðbjörg Ringsted opnar sýninguna "Ísland í blóma" á Café Karólínu laugardaginn 6. mars klukkan 15. Guðbjörg Ringsted útskrifaðist úr MHÍ 1982 og hefur starfað við kennslu og sinnt myndlist síðan þá. Hún hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í allnokkrum samsýningum. Síðasta einkasýning Guðbjargar var í Grafíksafni Íslands síðastliðið haust.

Hún segir um sýninguna á Café Karólínu: "Landið, fjöllin og fossarnir mynda oft ótrúleg munstur. Í verkum mínum leikur íslenskt blómamunstur um fjöll og fossa, jökla og sprænur. Þar sameinast áhugi minn á landinu og þjóðlegum útsaumi. Þetta eru akrýlmálverk á striga og eru þau flest máluð á þessu ári."

Sýningin stendur til föstudagsins 2. apríl og allir eru velkomnir.

Café Karólína // Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755.




Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica