vidburdir_juni
Allt - viðburðir
  • 16.2.2010 - 7.3.2010

Joris Rademaker í Listasafninu

Yfirlitssýning á verkum hollenska myndlistarmannsins Jorisar Rademaker. Myndlist Jorisar spannar ólíkar stefnur og rífur skörð í þá múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga. Hann vinnur með hugsanaflæði, bæði tvívítt og þrívítt, og styðst við fundna hluti og látlausan efnivið. Ákveðin stef eru könnuð í mörgum mismunandi útfærslum og byggja á formrænni einföldun þar sem möguleikar skynjunar og alls konar skynvilluleikir ráða ferðinni. Í tilefni af sýningunni hefur Listasafnið á Akureyri gefið út 90 blaðsíðna bók með ítarlegri umfjöllun um feril og list Jorisar eftir Úlfhildi Dagsdóttur bókmenntafræðing og Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2010 og er opin alla daga nema mánudaga frá 12-17.




Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica