Leiklestur: Íslensk verk
Leiklestur númer tvö í leiklestraröð LA fer fram í Samkomuhúsinu miðvikudagskvöldið 3. mars kl. 20.00. Þemað í þetta sinn er Íslensk verk. Leiklesin verða brot úr leikritinu Deleríum Búbónis eftir þá Jón Múla og Jónas Árnasyni og Draugadansinum, leikgerð eftir Jón Gunnar Þórðarson sem hann vann upp úr íslenskum draugasögum og þjóðlögum.
Leiklestur: Þráinn Karlsson, Guðmundur Ólafsson, Þrúður Vilhjálmsdóttir, Jana María Guðmundsdóttir, Þóra Karitas, Bryndís Ásmundsdóttir, Atli Þór Albertsson, Ólafur Ingi Sigurðsson og Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Tónlistarflutningur: Hjörleifur Jónsson, Eyþór Ingi Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir.
Aðgangseyrir er 500 krónur en frítt fyrir eldri borgara.
Hægt er að kaupa miða á heimasíðu LA, www.leikfelag.is eða í síma 4 600 200 kl. 13-17 virka daga.
Einnig er hægt að kaupa miða við innganginn á miðvikudagskvöldið.

