vidburdir_juni
Allt - viðburðir
  • 6.2.2010 - 5.3.2010

Andlitin mín: Samúel Jóhannsson

Sýning á Café Karólínu. Samúel Jóhannsson (sajóh) er fæddur 29. ágúst 1946 á Akureyri. Hann vinnur myndverk sín með akríllitum, tússbleki, járni og lakki. Myndverkasýningar Samúels eru orðnar fjölmargar (yfir tuttugu einkasýningar auk fjölmargra samsýning hér heima og erlendis), nú síðast í GalleríBOXi, sal Myndlistarfélagsins. Sýningin á Karólínu er 25. einkasýningin.

Samúel sótti nokkur námskeið á unglingsárum, að öðru leyti er hann sjálfmenntaður og hefur sinnt myndlistinni stöðugt frá 1980. Heimasíða hans er http://samueljohannsson.wordpress.com.




Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica