Joris Rademaker í Listasafninu
Yfirlitssýning á verkum hollenska myndlistarmannsins Jorisar Rademaker. Myndlist Jorisar spannar ólíkar stefnur og rífur skörð í þá múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga. Hann vinnur með hugsanaflæði, bæði tvívítt og þrívítt, og styðst við fundna hluti og látlausan efnivið. Ákveðin stef eru könnuð í mörgum mismunandi útfærslum og byggja á formrænni einföldun þar sem möguleikar skynjunar og alls konar skynvilluleikir ráða ferðinni. Í tilefni af sýningunni hefur Listasafnið á Akureyri gefið út 90 blaðsíðna bók með ítarlegri umfjöllun um feril og list Jorisar eftir Úlfhildi Dagsdóttur bókmenntafræðing og Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2010 og er opin alla daga nema mánudaga frá 12-17.

