Vidburdir_april10_2
Ýmislegt - viðburðir
  • 8.2.2010

Málþing: Hvað er kreppa?

Mánudaginn 8. febrúar kl. 15.00 boðar AkureyrarAkademían til spennandi málþings í gamla Húsmæðraskólanum undir yfirskriftinni "Hvað er kreppa?" Málþingið er haldið í samstarfi við Sagnfræðingafélag Íslands og eru erindi á þinginu hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins frá liðnu hausti. Fundarstjóri verður Kristín Ástgeirsdóttir. - Eins og venjulega er aðgangur ókeypis og allir velkomnir - Dagskráin verður eftirfarandi: 15:00 Húsið opnar 15:15 Kristín Ástgeirsdóttir - Þingið sett 15:20 Viðar Hreinsson, bókmenntafræðingur - Er einhver að hlusta? Um ótta og eymd hugvísindanna 16:00 Sigrún Davíðsdóttir, blaðamaður - Kreppan og kunningjaþjóðfélagið 16:40 Hlé 17:00 Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur - Er íslenskt fullveldi í kreppu? 17:40 Umræður 18:00 Þingslit.





Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica