Ýmislegt - viðburðir
LA: Fúlar á móti kl. 19
Sýningin Fúlar á móti var frumsýnd í febrúar 2009 á Akureyri og gekk fyrir fullu húsi þar. Sýningin var ein vinsælasta sýning á landinu um vorið þegar hún var sýnd í Íslensku óperunni í Reykjavík. Nú eru þær stöllur væntanlegar til Akureyrar að nýju og munu skemmta Norðlendingum um páskana. Verkið er breskt að uppruna - Grumpy Old Women Live! - og það eru þær Edda Björgvins, Helga Braga og Björk Jakobs sem eru Fúlar á móti í íslenskri útfærslu Gísla Rúnars Jónssonar.

