Visithaus_vetur

Samgöngur

Samgöngur

Allar samgöngur við bæinn eru greiðar, hvort sem er í lofti eða á láði. Flugfélag Íslands heldur uppi reglulegu flugi mörgum sinnum á dag milli Reykjavíkur og Akureyrar . Norlandair býður upp á áætlunarflug t.d. til Grímseyjar. Hópferðamiðstöðin ekur með farþega sína um 380 km leið milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins einu sinni til tvisvar sinnum á dag. SBA-Norðurleið er með áætlunarferðir til nokkurra þéttbýlisstaða á Norður og Austurlandi. Ferjurnar Sæfari og Sævar halda uppi áætlunarferðum til Grímseyjar og Hríseyjar.

Strætisvagnar Akureyrar:
Athugið að þegar til Akureyrar er komið þá er ókeypis með öllum strætisvögnum bæjarins. Ekið frá kl. 6.25 til 23.03 alla virka daga. Hægt er að nálgast leiðabók strætó hér.

Senda grein



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica