Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Flýtilyklar
Afþreying og útivist
Afþreying og afgreiðslutími 2011-2012
Mikið framboð er af ýmis konar afþreyingu og viðburðum á Akureyri um veturinn. Í meðfylgjandi yfirliti má finna þjónustulista og afgreiðslutíma á Akureyri veturinn 2011-2012.
Lesa meira
Bátsferðir
Húni II er með siglingar frá Akureyri. Í boði eru fastar ferðir yfir sumarið en einnig er hægt að panta sérferðir samkvæmt samkomulagi fyrir hópa. Báturinn tekur allt að 100 manns.
Lesa meira
Börn og afþreying
Á Akureyri er að finna fjöldan allan af leiksvæðum, leikvöllum og sparkvöllum. Sundlaug Akureyrar, Andapollurinn fyrir neðan Sundlaug Akureyrar og Lystigarðurinn eru vinsælir viðkomustaðir. Kjarnaskógur, helsta útivistasvæði bæjarins, býður upp á spennandi möguleika, leiktæki, stíga.
Lesa meira
Dagsferðir frá Akureyri: Jeppaferðir - Einkaleiðsögn
Saga Travel býður upp á fjölbreytt úrval dagsferða frá Akureyri þar sem margar af helstu perlum norðurlands eru heimsóttar. Að sjálfsögðu er einkaleiðsögn fyrir litla sem stóra hópa í boði allt árið og í samvinnu við ykkur setjum við saman ferðir frá einni klukkustund upp í heildags ævintýri.
Lesa meira
FAB Travel
FAB Travel er ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á góða og persónulega þjónustu og er með aðsetur bæði á Akureyri og í Hafnarfirði.
Lesa meira
Ferðafélag Akureyrar
Ferðafélag Akureyrar (FFA) var stofnað árið 1936 . Það er sjálfstæð deild í Ferðafélagi Íslands, sem þýðir að félagsmenn njóta allra sömu réttinda og félagar FÍ.
Lesa meira
Fjallatrukka ferðir
EXT ehf / Extreme Icelandic Adventures er norðlenskt fyrirtæki sem á og rekur einn stærsta fjallatrukk á Íslandi.
Bjóðum uppá 1-2 klst. ferðir, ½ dags ferðir, dagsferðir um Eyjafjarðarsvæðið.
Lesa meira
Fuglaskoðun
Margir góðir staðir eru til fuglaskoðunar á Akureyri og næsta nágrenni bæjarins og er búið að koma fyrir fuglaskoðunarhúsum á fjórum stöðum innan sveitarfélagsins. Þessi svæði eru Naustaborgir, Krossanesborgir, óshólmar Eyjafjarðarár og í Hrísey.
Lesa meira
Golfvöllur Akureyrar Jaðri
Á Akureyri er nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi, Jaðarsvöllur. Þar er árlega haldið golfmót sem er einstakt í sinni röð og nefnist Arctic Open.
Lesa meira
Grímsey
Eyjan liggur á heimskautsbaug og er mynduð úr blágrýti sem myndar víða afar fallegt stuðlaberg sem er vinsælt myndefni ljósmyndara. Fuglalíf er einstakt, tegundir margar og fjöldi fugla mikill. Víða er einstök aðstaða til að ljósmynda og skoða fuglalífið. Ein stærsta lundabyggð Íslands er í Grímsey.
Lesa meira
Gönguferðir
Í þessum kafla má skoða göngukort, fræðast um dagskrá gönuvikunnar, skoða ferðir sem boðið er upp á með leiðsögn og ýmislegt fleira.
Lesa meira
Gönguferðir með leiðsögn
Lifandi leiðsögn um innbæ Akureyrar. Gengið er frá kirkjutröppunum við Hótel KEA og inn í elsta hluta bæjarins að Minjasafninu eða rúm 1.5 km. Sagt er frá þróun bæjarins, markverðum stöðum og frásögnum.
Lesa meira
Hestaleigur
Tvær hestaleigur eru í nágrenni Akureyrar. Hestaleigan Kátur sem er í 5 mínútna akstri frá miðbænum, sérhæfir sig í styttri ferðum meðfram Eyjafjarðaránni. Pólar Hestar sem er í um 20 mínútna akstri frá miðbænum býður upp á styttri og lengri ferðir um sveitir og óbyggðir.
Lesa meira
Hjólreiðar og reiðhjólaleiga
Akureyri hentar mjög vel til hjólreiða enda eru fjölmargir leiðir og stígar í boði. Má þar m.a. nefna leiðina meðfram Glerá, í Naustaborgum og í Kjarnaskógið. Reiðhjólaleiga er í miðbæ Akureyrar.
Lesa meira
Hlíðarfjall
Í Hlíðarfjalli er sannkölluð skíðaparadís rétt við bæjardyrnar. Þar eru frábærar aðstæður til að skíða og snjóbrettaiðkunnar. Lyfturnar á svæðinu geta samanlagt flutt 4,440 manns á klst. en samfelldur hæðarmunur á skíðabrekkunum er um 500 metrar.
Lesa meira
Hvalaskoðun
Víða á Norðurlandi eru hægt að komast í hvalaskoðun og má jafnvel sjá hvali innst í Eyjafirði en á Pollinum framan Akureyrar hafa til að mynda sést andarnefjur, hnúfubakar og hrefnur. Nokkur fyrirtæki við Eyjafjörð sérhæfa sig í hvalaskoðun.
Lesa meira
Inspiration Iceland ehf
Inspiration Iceland er fyrirtæki sem leggur áherslu á lifandi og skemmtileg ferðalög og bíður uppá ævintýraferðir til orkustaða og náttúrulinda, heilsu- og jóga ferðalög undir miðnætursólinni og norðurljósunum.
Lesa meira
Jeppaferðir
Icelandic Outback sérhæfir sig í dagsferðum frá Akureyri um óbyggðir og hálendi Íslands. Fyrirtækið tekur einnig að sér ferðir með smærri hópa, t.d. vegna árshátíða, óvissuferða og þess háttar.
Lesa meira
Jólagarðurinn
Jólagarðurinn er sannkölluð töfraveröld jólanna aðeins tíu mínútna akstur frá miðbæ Akureyrar. Verslun með jólavörur, garður og nestisbekkir. Opið allt árið.
Lesa meira
Kaldbaksferðir
Með Kaldbaksferðum er hægt að komast í lengstu skíðabrekku landsins, farið er upp á Kaldbak sem er 1174 metrar á hæð og býður upp á ótrúlegt útsýni í góðu veðri. Farið er upp á fjallið með snjótroðara. Síðan er hægt að fara niður á skíðum, bretti, gangandi eða aftur með snjótroðaranum.
Lesa meira
Keilan Akureyri
Í salnum eru átta brautir. Opið er í Keilunni og Kaffi Jónsson mánudaga til laugardaga frá kl. 11.00 til 23.30 og sunnudaga 11.00 22.00
Lesa meira
Kjarnaskógur útivistarsvæði
Fjölbreytt útivistarsvæði með alhliða möguleikum til hollrar útivistar. Í Kjarnaskógi eru upplýstar trimmbrautir og göngustígar.
Lesa meira
Nonni Travel
Afþreying fyrir einstaklinga og hópa. Ferðaskrifstofan Nonni býður eigin ferðir auk úrvals annarra ferða og ýmsa afþreyingu. Skrifstofan er sérhæfð í ráðgjöf og skipulagningu sérsniðinna ferða fyrir einstaklinga og hópa.
Lesa meira
Skautahöllin á Akureyri
Skautafélag Akureyrar var stofnað 1. janúar 1937. Félagið hefur það að markmiði að efla skautaíþróttina og rekur nú hina nýju og glæsilegu Skautahöll á Akureyri. Hægt er að fá leigða skauta á svæðinu og einnig er þar starfrækt sjoppa.
Lesa meira
Skoðunarferðir með rútu
Skoðunarferðir SBA-Norðurleiðar um Norðurland eru löngu heimsþekktar. Nægir þar að nefna dagsferð í Mývatnssveit með leiðsögn sem hefur verið farin um áratugaskeið.
Lesa meira
Skotfélag Akureyrar
Í félaginu eru yfir 250 félagsmenn sem ýmist eru skotíþróttamenn eða veiðimenn. Æfingasvæði félagsins og félagshús er að finna í Glerárdal. Farið er upp Hlíðarfjallsveginn og afleggjari til vinstri við Hlíðarenda tekinn.
Lesa meira
Sportferðir
Sportferðir ehf. eru með aðsetur að hinum sögufræga bæ Kálfsskinni. Fyrirtækið sérhæfir sig í skipulagningu hvataferða og hópeflis fyrir einstaklinga og hópa. Einnig er boðið upp á ýmsa afþreyingu, ss. vélsleða-, jeppa-, göngu-, hesta-, og sjóferðir, skot- og stangveiði, köfun og margt fleira.
Lesa meira
Stangaveiðifélag Akureyrar
Stangaveiðifélag Akureyrar selur veiðileyfi í ýmsar ár á Norðurlandi og heldur uppi öflugu félagsstarfi yfir vetrartímann. Af ársvæðum sem félagið hefur til ráðstöfunar má nefna Hofsá í Skagafirði, Ólafsfjarðará, Svarfaðardalsá, Hörgá, Reykjadalsá, Mýrarkvísl og Brunná.
Lesa meira
Sundlaugar á Akureyri, Hrísey og Grímsey
Tvær sundlaugar eru á Akureyri. Sundlaug Akureyrar er með tvær laugar auk tveggja rennibrauta, busllaug, innilaug, fjóra heita potta, eimbað, gufubað, ljósalampa og fjölskyldugarð. Glerárlaug er innilaug og á útisvæði laugarinnar eru tveir heitir nuddpottar og vaðlaug auk útkilefa.
Lesa meira
Svifvængjasetur Norðurlands
Svifvængjasetur Norðurlands býður upp á dagsnámskeið í svifvængjaflugi. Á 6 klukkutímum er farið yfir undirstöðuatriði flugsins og hvernig stjórna á vængnum frá jörðunni.
Lesa meira
Taxi No.17
Taxi No.17 er lítil ferðaskrifstofa í fjölskyldueign. Starfsemi fyrirtækisins er fyrst og fremst sala útsýnisferða um Norðurland. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu sem er sérsniðin að þörfum hvers farþega. Áralöng reynsla fjölskyldumeðlima af ferðaþjónustu kemur þeim til góða í þeirri viðleitni að tryggja hátt þjónustustig.
Lesa meira
The Traveling Viking
The Traveling Viking, er fjölskyldufyrirtæki sem býður upp á persónulegt viðmót, vandaða þjónustu og umfram allt góða skapið í öllu sem við kemur ferðaskipulagi og dagsferðum frá Akureyri.
Lesa meira
Útsýnisflug
Mýflug og Norlandair starfrækja útsýnisflug frá Akureyrarflugvelli og bjóða upp á fjölbreytt úrval útsýnisferða um norðurland auk ferða til Grímseyjar.
Lesa meira
Leit
Svæði
V 2m / s
+5°
































Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.