Í þessum kafla má skoða göngukort, fræðast um dagskrá gönguvikunnar, skoða ferðir sem boðið er upp á með leiðsögn og ýmislegt fleira.
Kort/bæklingar og upplýsingar:
Göngukort af bænum
Kvennasögugangan
Bæklingurinn "Frá torgi til fjöru"
Bæklingur "Gönguferð um Akureyri (Leið A)
Kort af Kjarnaskóg, Hömrum og Naustaborgum
Gönguferðir með leiðsögn:
Huliðsheimar Akureyrar - Englabærinn Akureyri
HELGI MAGRI - sögugöngur
Gönguvikur og göngur:
Gönguvika ferðafélags Akureyrar 10.-16. júní 2013
Gönguvika á Akureyri og nágrenni 1.-7. júlí 2013
Gönguvika Ferðafélagsins Hörgs 14. - 17. ágúst 2013
Glerárdalshringurinn 24x24
Arctic Running Hlaupaferðir
Kerling í Eyjafirði
Súlur í Eyjafirði
GÖNGUKORT AF BÆNUM:
Í bænum má fínna fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir. Á meðfylgjandi korti er hægt að sjá nokkrar þeirra.
Vert er að vekja athygli á fræðandi og forvitnilegri samantekt um nokkrar merkar konur sem bjuggu í Innbænum og settu svip sinn
á bæjarlífið: sjá nánar Kvennasögugangan.
Gott er að prenta út skjalið og hafa með sér í heillandi gönguferð um gamla Innbæinn.
Göngubæklingur "Frá torgi til fjöru" Söguganga um Akureyri, er bæklingur sem gefur upplýsingar í myndum og máli um gönguleiðina frá
miðbænum og yfir í innbæinn með greinargóðu korti af gönguleiðinni
Gönguferð um Akureyri (Leið A) er
bæklingur sem tekur fyrir nokkrar markverðar byggingar í miðbæ og innbæ Akureyrar.
Kjarnaskógur, Hamrar og Naustaborgir eru vinsæl útivistarsvæði með úrval gönguleiða og
leiksvæða. Búið er að færa allar leiðirnar sem í boði eru inn á meðfylgjandi kort.
GÖNGUFERÐIR UM AKUREYRI MEÐ LEIÐSÖGN:
Huliðsheimar Akureyrar - Englabærinn Akureyri
Sími: 895 7333
Álfar, englar, dvergar og huldar vættir.
Erla Stefánsdóttir sjáandi er löngu landskunn fyrir skynjanir sínar. Hún sér og skynjar bylgjulengdir sem ná langt út fyrir það sem mannleg augu sjá og skynja.
Erla er höfundur að kortinu Huliðsheimar Akureyrar sem lýsir náttúrusýn hennar. Teikningar Erlu af náttúruverum og bústöðum þeirra eru felldar inní ljósmyndir af viðkomandi stað. Þetta kort er teiknað og gefið út í þeirri von að það auki virðingu okkar og væntumþykju fyrir náttúrunni, landinu og jörðinni allri.
Kyrrð, orka, töfrar og himneskt útsýni.
Kyrrlát gönguferð innan bæjarins í fallegu umhverfi Glerár með huliðsheimakort Erlu Stefánsdóttur í hönd. Lagt af stað frá Íslandsklukkunni við Háskólann á Akureyri. Gengið upp með Glerá að vestan og niður með ánni að austan, gangan endar á upphafsstað, við Íslandsklukkuna og tekur 1,5 ? 2 klukkustundir.
Verð kr. 2000 (13 ára og eldri)
Ath. lágmark 12.000 kr eða 6 manns. Frítt fyrir börn 12 ára og yngri.
Ferðin er í boði allt árið skv. samkomulagi.
Umsjónarkona gönguferðanna og útgefandi huliðsheima kortsins er Katrín Jónsdóttir, sími: 895 7333, netfang: katjons@internet.is
Huliðsheimakortið er til á íslensku, ensku og þýsku og fæst í Upplýsingamiðstöðinni Hofi og ferðamannaverslunum á Akureyri. Heimasíða: http://www.hulidsheimar.is/
HELGI MAGRI - GÖNGUFERÐIR

Sími: 863 2080
Tölvupóstur: herdis@hema.is, sigrun@konica.is
Lifandi leiðsögn um Innbæ Akureyrar. Gengið er frá kirkjutröppunum við Hótel KEA og inn í elsta hluta bæjarins að Minjasafninu eða
rúm 1.5 km. Sagt er frá þróun bæjarins, markverðum stöðum og frásögnum.
Gangan tekur um 2 klukkustundir.
Athugið að þátttakendur sjá sjálfir um að koma sér tilbaka frá Minjasafninu, gefnar eru tillögur að gönguleiðum og/eða
ferðum með strætisvagni. Ekkert gjald er tekið í Strætisvögnum Akureyrar.
Boðið er upp á gönguferðir um Akureyri allt árið.
Lágmarksfjöldi í hverri ferð eru fjórir Nánari upplýsingar og bókanir eru í síma 863
2080.
Verð (2011): kr. 2500 (frítt fyrir börn yngri en 12 ára).
Fyrir hópa stærri en 10 manns kr 1000 á mann.
GÖNGUVIKUR Á AKUREYRI OG NÁGRENNI

Sérstök gönguvika á sér stað árlega í byrjun júlí í tengslum við 24 tinda gönguna umhverfis Glerárdalinn. Dagskrá gönguvikunnar sumarið 2013 má finna hér fyrir neðan og einnig dagská annara gönguviðburða sem eiga sér stað í sumar.
Göngugarpar og annað útivistarfólk kemst í skipulagðar gönguferðir um Eyjafjörð í nánast allt sumar á vegum
Ferðafélags Akureyrar, Naturalis, Helga Magra og fleiri.
GÖNGUVIKA FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR
10.-16. júní 2013
10. – 14. júní. Gönguvika (og lengri göngur 15 og 16.júní)
Gönguvikan samanstendur af stuttum tveggja til þriggja klukkustunda kvöldgöngur við flestra hæfi.
Í framhaldi af gönguvikunni eru auk þess tvær lengri göngur sem einnig eru kynntar hér.
Gásir. 
10. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23 .
Fararstjóri: Örn Þór Emilsson
Verð: kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
Gásir við Eyjafjörð var verslunarstaður á miðöldum um aldir og má sjá þar friðlýstar fornleifar. Gengið um
svæðið, rýnt í söguna og ummerki fornrar byggðar skoðuð.
Bryðjuskál í Staðarbyggðarfjalli. 

11. júní. Brottför kl.19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23 .
Fararstjóri: Konráð Gunnarsson
Verð: kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
Harðarvarða á Hlíðarfjalli. 

Sjá myndir
12. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23 .
Fararstjórn: Félagar frá 24x24.
Verð: kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að Skíðastöðum og gengið þaðan á fjallið og að vörðunni. Reikna má með að ferðin taki a.m.k. 4
tíma.
Haus í Staðarbyggðarfjalli. 
Sjá
myndir
13. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Roar Kvam
Verð: kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið frá sumarhúsinu Seli.
Stórihnjúkur á Hlíðarfjalli. 
Sjá myndir
14. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23 .
Fararstjóri: Einar Brynjólfsson
Verð: kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að Skíðastöðum og gengið þaðan á fjallið.
Klængshóll-Skriða. 


15. júní. Brottför kl. 8 í rútu frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Grétar Grímsson
Verð: kr. 7.000 / kr. 6.500. Innifalið: akstur og fararstjórn.
Ekið að Klængshóli í Skíðadal þar sem gangan hefst. Gengið inn Heiðinnamannadal og er hann sveigir til suðurs er farið til vinstri upp
í Skriðudalsskarð yfir í Skriðudal. Í lokin er gengið niður með fallegu gljúfri Syðri - Tunguár. Vegalengd 19 km, gönguhækkun
1010 m.
Fífilbrekkuhátíð að Hrauni. 
Sjá myndir
16. júní. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Bjarni E. Guðleifsson
Verð: Frítt.
Í samstarfi við Ferðafélagið Hörg verður boðið upp á göngu upp að Hraunsvatni undir leiðsögn eins okkar fróðustu manna
um þetta svæði. Fremur auðveld ganga. Auk þess verða aðrir menningarviðburðir í tilefni dagsins.
Gönguvika á Akureyri og nágrenni
1.-7. júlí 2013
Gönguferðirnar eru á vegum ýmissa aðila. Hægt er að nálgast ítarlegri upplýsingar
hjá þeim sem skipuleggja hverja göngu fyrir sig.
Mánudagur 1. júlí: Reykárgil í Eyjafirði. 
Sjá myndir
Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23 .
Fararstjóri: Anke Maria Steinke
Verð: kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið meðfram gili Reykár. Stutt 2-3 tíma ganga á vegum Ferðafélags Akureyrar
Þriðjudagur 2. júlí: Fossárgil á Þelamörk. 
Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23 .
Fararstjórn: Félagar frá 24x24.
Verð: kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið meðfram gili Fossár. Stutt 2-3 tíma ganga á vegum Ferðafélags Akureyrar
Miðvikudagur 3. júlí: Þverárgil í
Eyjafirði. 
Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23 .
Fararstjóri: Roar Kvam
Verð: kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið meðfram gili Þverár. Stutt 2-3 tíma ganga á vegum Ferðafélags Akureyrar
Fimmtudagur 4. júlí: Stóragil í Öxnadal. 


Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Konráð Gunnarsson
Verð: kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið upp með gilinu sem er nokkuð bratt. Stutt 2-3 tíma ganga á vegum Ferðafélags Akureyrar
Laugardagur 6. júlí: Heljardalsheiði. 


Brottför kl. 8 í rútu frá FFA
Strandgötu 23.
Fararstjóri: Helga Guðnadóttir
Verð: 10.900 / 10.400 Innifalið: Akstur og fararstjórn.
Gengin er forn
þjóðleið frá Atlastöðum í Svarfaðardal að Hólum í Hjaltadal. Vaða þarf Heljará og Kolbeinsdalsá sem getur
verið vatnsmikil og nokkuð straumhörð. Þá er gengin vegslóð að eyðibýlinu Fjalli þangað sem bílinn sækir okkur. Ef
aðstæður leyfa verður staldrað við á Hólum. Vegalengd að Fjalli 19 km, gönguhækkun 670m.
Laugardagur 6. júlí:
Glerárdalshringurinn -24 tindar
Gengið er á 24 tinda um 45 km leið með um 4.500 m gönguhækkun. Reikna
má með um 20 – 28 klst. í gönguna. Nánari upplýsingar m.a. varðandi skráningarfrest á http://www.24x24.is/ undir Hringurinn.
Sunnudagur 7. júlí: Þeistareykir – Þeistareykjabunga. 

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23 .
Fararstjóri: Sigurgeir Sigurðsson
Verð: kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Þeistareykjabunga er ein stærsta dyngja landsins og eru upptök hennar í Stóravíti. Gangan hefst á Þeistareykjum og gengið að
Litlavíti sem er mjög sérstakt, og áfram að Stóravíti. Síðan gengið á hæsta punkt Þeistareykjabungu, þaðan
sem víðáttumikil hraun hafa runnið og er þar víðsýnt um svæðið.
Sunnudagur 8. júlí: Fuglaskoðun í Hrísey - í
vinnslu
Gönguferð og fuglaskoðun um Hrísey. Mæting á ferjuna á Árskógssandi kl.
9.30, brottför Hrísey kl. 10.00. Lengd: 2 - 2,5 tímar. Létt ganga.
Verð: kr. 1000 (ferjuferð ekki innifalin). Lágmark: 5 manns
Skráning: á hrisey@hrisey.net eða í
síma 695-0077
Gönguvika Ferðafélagsins Hörgs
14. - 17. ágúst 2013
Miðvikudagur 14. ágúst: Gljúfrabúi í Öxnadal. 
Mæting við Steinsstaði í Öxnadal kl. 17.00 Stutt ganga.
Verð: Ókeypis Gengið að fossinum Gljúfrabúa og leituð upp önnur örnefni.
Ferðinni lýkur í Jónasarlundi.
Fimmtudagur 15. ágúst: Hraunshöfðaskáli í Öxnadal. 
Mæting við hliðið að Miðhálsstaðaskógi kl. 17.00 Stutt ganga.
Verð: Ókeypis Keyrt í jeppum inn að Skjaldarstöðum og gengið upp í Hraunshöfðaskál.
Föstudagur 16. ágúst: Heljarskál í Landafjalli. 
Mæting við Miðland í Öxnadal kl. 17.00 Stutt ganga.
Verð: Ókeypis Gengið í Heljarskál.
Laugardagur 17. ágúst: Siglufjörður.
Mæting við Þelamerkurskóla kl. 9.00 Dagsferð til Siglufjarðar. Hvanneyrarskál skoðuð og ýmsar óvæntar uppákomur m.a.
heimsókn í söfn. Nauðsynlegt er að skrá sig í þessa ferð.
Verð: Þátttökugjald auglýst síðar.
GLERÁRDALSHRINGURINN 24x24

24x24
Sími: 8640700 & 8641366
Netfang: vidar@24x24.is, raggi@24x24.is
Veffang: www.24x24.is
Glerárdalshringurinn er stór og umfangsmikill fjallgönguviðburður sem genginn er árlega í júlí. Tímasetningin er valin miðað
við bestu aðstæður á svæðinu. Glerárdalur er stór dalur girtur háum fjöllum, þeim hæstu á Tröllaskaga. Þar
af eru 10 þeirra hærri en 1400 metrar, Kerling hæst um 1540 metrar. Glerárdalshringurinn liggur eftir þessum háu fjallatoppum allan hringinn umhverfis dalinn.
Leiðin er um 45 km. og samanlögð hækkun leiðarinnar er um 4500 metrar og lækkunin um 4800 metrar. Markmið leiðarinnar er að ganga (ekki hlaupa) á 24
fjöll á 24 tímum. Hins vegar eru aðstæður svo breytilegar að óraunhæft er að bera saman göngutíma milli ára. Hvort heldur sem
farið er á 20 tímum eða 28 tímum þá hefur fólk lokið mikilli þolraun, gengið upp á 24 tinda samfellt í einni lotu. Um
það snýst Glerárdalshringurinn.
Lagt er upp frá Skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli og komið niður af Súlum. Hægt er að fara hluta leiðarinnar. Nánari
upplýsingar er að finna á www.24x24.is.
Arctic Running Hlaupaferðir
Sími: 857 9797
Heimasíða: www.articrunning.is
Netfang: info@articrunning.is
Arctic Running er hlaupaferða fyrirtæki sem býður upp á hlaupaferðir fyrir alla þá sem hafa gaman að því að sameina útivist og hreyfingu. Hlaup eru notuð sem fararmáti á leið okkar að kanna umhverfið og njóta þess sem náttúran hefur upp á að bjóða hverju sinni. Við bjóðum bæði upp á dagsferðir og lengri ferðir auk þess sem við bjóðum upp á margs konar hlaupaviðburði á Norðurlandi.
Arctic Running sérhæfir sig í að blanda saman hlaupum og ferðamennsku fyrir fólk sem hefur einhverja reynslu af hlaupum og langar til að upplifa það sem Ísland hefur upp á að bjóða. Leiðsögumennirnir okkar eru margir hverjir reyndustu hlauparar landsins og taka oft þátt í utanvegahlaupum og keppnum sem og lengri hlaupaferðum. Með okkar mikla úrvali af hlaupaferðum, hvort sem það eru erfiðar ferðir þar sem hlaupið er 20 - 35km á dag eða auðveldari ferðir þar sem hlaupið er 10km á dag, ættu allir hlauparar að finna ferð við hæfi hjá okkur.
Kerling í Eyjafirði
Kerling. Sjö tinda ferð. 1538 m. 



13. júlí. 2013
Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjórar: Sigurlína Jónsdóttir og Frímann Guðmundsson
Verð: kr. 3500 / kr. 3.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið á hæsta fjall í byggð á Íslandi, Kerlingu í Eyjafirði (1538 m). Ekið að Finnastöðum og farið þaðan á
fjallið, gengið norður eftir tindunum Hverfanda, Þríklökkum, Bónda, Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðrisúlu og Ytrisúlu. Gengið
niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar. Vegalengd um 20 km. Topp ferð.




Akureyrarstofa