Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Flýtilyklar
Áhugaverðir staðir
Akureyrarkirkja
Akureyrarkirkja var vígð árið 1940. Kirkjan var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni, þáverandi húsameistara ríkisins.
Lesa meira
Gásir
Gásir við Eyjafjörð eru einstakur staður 11 km norðan við Akureyri. Gásakaupstaður er verslunarstaður frá miðöldum og eru rústir þess enn sýnilegar. Þar eru árlega haldnir miðaldardagar.
Lesa meira
Glerárgil
Glerárgil er með dýpstu og mikilfenglegustu árgiljum í Eyjafirði, en jafnframt eitt hið gróðurríkasta. Það er grafið af Gleránni þar sem hún rennur fram úr mynni Glerárdals í um 200 m hæð yfir sjávarmáli, og nær niður að Gleráreyrum.
Lesa meira
Grímsey
Grímsey er græn, grösug og einstaklega gjöful eyja: Útvörðurinn í norðri með auðug fiskimið og litríkt fuglalíf. Frægust er Grímsey trúlega í hugum ferðamanna fyrir heimskautsbauginn og kemur fólk gjarnan langa leið, til þess eins að stíga norður fyrir baug.
Lesa meira
Hrísey
Hrísey er hluti Akureyrarkaupstaðar en eyjan er í utanverðum Eyjafirði og er önnur stærsta eyjan við Ísland, næst á eftir Heimaey sem einnig er eina eyjan hér við land þar sem búa fleiri en í Hrísey. Heimsókn út í Hrísey er ógleymanlegt ævintýr, enda er eyjan ekki kölluð "Perla Eyjafjarðar" að ástæðulausu.
Lesa meira
Innbærinn
Eitt af höfuðprýðum Akureyrar eru gömul hús. Í Innbænum og Fjörunni er að finna elstu hús bæjarins sem flest eru byggð á árunum 1800-1900. Mörg þeirra eru friðuð samkvæmt lögum.
Lesa meira
Kjarnaskógur
Fjölbreytt útivistarsvæði með alhliða möguleikum til hollrar útivistar. Svæðið er í eigu Akureyrarbæjar en í umsjá Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Lesa meira
Krossanesborgir
Krossanesborgir eru svæði alsett klettaborgum eða stuttum klappaásum fyrir norðan Akureyri. Svæðið var friðlýst að hluta árið 2005 sem fólkvangur.
Lesa meira
Laufabrauðssetur
Mynstrað munngæti er verkefni sem að snýr að mynsturgerð í íslenskri matarhefð. Vissir þú að íslenskt laufabrauð er einstakt í heiminum? Laufabrauð þróaðist á íslenskum heimilum þegar takmarkað mjöl var til og þjóðin nýtti hugvit og handverk til að skapa list úr litlu.
Lesa meira
Lystigarðurinn á Akureyri
Garðurinn er einn af fegurstu perlum Akureyrarbæjar. Stofnað var til hans fyrir forgöngu kvenna árið 1910 og stóð frú Anna Schiöth þar í fararbroddi.
Lesa meira
Merk tré á Akureyri
Allt frá því að trjárækt hófst á Íslandi í einhverjum mæli í kringum aldamótin 1900, hefur Akureyri staðið feti framar öðrum bæjarfélögum á landinu á því sviði. Akureyri hefur stundum verið kölluð ?bærinn í skóginum? og ekki að ástæðulausu.
Lesa meira
Sundlaug Akureyrar
Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís á heimsmælikvarða fyrir alla fjölskylduna. Sundlaugarnar eru tvær. Á svæðinu er að finna tvær rennibrautir, busllaug, innilaug, fjóra heita potta, eimbað, gufubað, ljósalampa og fjölskyldugarð með vinsælum leiktækjum sem er opinn yfir sumartímann.
Lesa meira
Leit
Svæði
SA 2m / s
-1°















Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.