Gásir

Gásir Gásir við Eyjafjörð eru einstakur staður 11 km norðan við Akureyri. Gásakaupstaður er verslunarstaður frá miðöldum og eru rústir þess enn sýnilegar.

Gásir

Gásir við Hörgárósa
Netfang: ksb@akmus.is
Veffang:
www.gasir.is

Gásir við Eyjafjörð eru einstakur staður 11 km norðan við Akureyri. Gásakaupstaður, verslunarstaður frá miðöldum eru friðlýstar fornleifar í umsjón Fornleifaverndar ríkisins.
Á staðnum má sjá einstakar rústir þessa forna kaupstaðar sem var við lýði allt frá 12. öld og jafnvel allt að því að verslun hófst á Akureyri á 16. öld. Ár hvert í júlímánuði eru haldnir miðaldardagar að Gáum þar sem gestum svæðisins er gefið færi á að skyggnast inní lífs- og starfshætti fólks á síðmiðöldum. Söngvarar, dönsk kaupmannsfjölskylda og stór hópur handverksmanna og fjölskyldur íklæðast miðaldalegum fötum við störf og leik. Nánari upplýsingar um sögu, náttúru staðarins og miðaldadagana má finna á
www.gasir.is




 
V V 2m / s +
  • Innsíða - Leirutjörn

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.