Hrísey

Hrísey Hrísey er hluti Akureyrarkaupstaðar en eyjan er í utanverðum Eyjafirði og er önnur stærsta eyjan við Ísland, næst á eftir Heimaey sem einnig er

Hrísey

Hús Hákarla - Jörundar
Norðurvegi 3
630 Hrísey
Sími: 695 0077
Netfang: hrisey@hrisey.net
Veffang: www.hrisey.net

Hrísey er hluti Akureyrarkaupstaðar en eyjan er í utanverðum Eyjafirði og er önnur stærsta eyjan við Ísland, næst á eftir Heimaey sem einnig er eina eyjan hér við land þar sem búa fleiri en í Hrísey. Heimsókn út í Hrísey er ógleymanlegt ævintýr, enda er eyjan ekki kölluð "Perla Eyjafjarðar" að ástæðulausu.

Hún er um 7,5 km að lengd og 2,5 km að breidd þar sem hún er breiðust að sunnanverðu. Eyjan mjókkar til norðurs og þar rís hún hæst í um 110 m.y.s. þar sem stendur viti sem reistur var á svonefndum Bratta árið 1920.

Norðurhluti Hríseyjar, Ystabæjarland, er alfriðað land í einkaeign. Sérstakt leyfi landeiganda þarf til að fá að fara um þann hluta eyjarinnar.

Í Hrísey er u.þ.b. 200 manna byggð í snyrtilegu sjávarþorpi með hellulögðum götum, ræktarlegum görðum og útsýni sem á sér fáa líka til fjallahringsins um Eyjafjörð.

Til Hríseyjar gengur ferjan Sævar, nýtt og glæsilegt skip, á einnar til tveggja stunda fresti (sjá áætlun) frá Árskógssandi. Tekur siglingin aðeins um 15 mínútur.

Í eynni er m.a. hægt að fara í skemmtilegar gönguferðir, taka þátt í vagnferð á traktor með leiðsögn eða vitaferð, skoða hákarlasafnið í húsi Hákarla Jörundar, fara í sund eða bara njóta friðsældarinnar og fuglalífsins á þessum einstaka stað. Hægt er að nálgast ýtarlegri upplýsingar um ferðaþjónustu á vef Hríseyinga og einnig skoða upplýsingar í eftirfarandi bækling um Hrísey.


 
V V 2m / s +
  • Innsíða - Leirutjörn

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.