Kjarnaskógur

Kjarnaskógur Fjölbreytt útivistarsvæði með alhliða möguleikum til hollrar útivistar. Svæðið er í eigu Akureyrarbæjar en í umsjá Skógræktarfélags

Kjarnaskógur

Skógræktarfélag Eyfirðinga
Kjarnaskógur
IS-600 Akureyri
Sími: 462 4047
Netfang: kjarni@est.is
Heimasíða: www.kjarnaskogur.is

Kjarnaskógur er eitt vinsælasta útivistarsvæði Akureyringa, um 800 hektara að stærð. Við upphaf skógræktar á svæðinu um 1950 var landið skóglaust með öllu. Síðan þá hefur verið plantað um 1.5 milljónum plantna og er þar mikil gróðursæld og gott skjól.
Í skóginum má m.a. finna:
* Tvö leiksvæði með fjölda leiktækja
* Blakvöll
* Yfirbyggða grillaðstöðu sem hentar jafnt einstaklingum sem hópum
* Stærsta skipulagða gönguskíðasvæði landsins (í skóglendi) með allt að 20 km troðnum brautum, þar af eru 6 km upplýstir. Athugið að  hægt er að nálgast upplýsingar um færðgönguskíðasvæðisins í síma (+354) 8784050
*Fyrstu sérhönnuðu fjallahjólabraut landsins
* Um 12 km af malarbornum stígum, þar af eru 6 km upplýstir, auk fjölda annarra skógarstíga.
* Snyrtingar og vatnsbrunn

Svæðið er í eigu Akureyrarbæjar en í umsjá Skógræktarfélags Eyfirðinga.


N N 5m / s +8.3°
  • Innsíða - Viking tröll sumar

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.