Krossanesborgir

Krossanesborgir Krossanesborgir eru svæði alsett klettaborgum eða stuttum klappaásum fyrir norðan Akureyri. Svæðið var friðlýst að hluta árið 2005 sem

Krossanesborgir

Krossanesborgir eru svæði alsett klettaborgum eða stuttum klappaásum fyrir norðan Akureyri. Svæðið var friðlýst að hluta árið 2005 sem fólkvangur. Í borgunum er 5-10 milljóna ára basalt, úr því er berggrunnur Akureyrar. Langflestar borganna eru nokkurn veginn eins og ísaldarjökullinn skildi við þær fyrir um 10 þúsund árum. Þær liggja í óreglulegum röðum og þyrpingum, en á milli þeirra eru oftast mýrarsund, og tjarnir í sumum þeirra. Mikill gróður er í tjörnum á svæðinu, sérstaklega Djáknatjörn, en þar vaxa margar nykrutegundir, m.a. hin sjaldgæfa langnykra. Gróðurfar í borgunum er fjölbreytt og hafa þar fundist um 190 plöntutegundir, þar af 16 starategundir. Þetta er um 40% allra íslenskra blómplantna og byrkninga. Fuglalíf er fjölbreytt, þar verpa um 27 tegundir fugla eða um 35% af öllum íslenskum fuglategundum. Heimild frá heimasíðu Umhverfisstofnunar.




 
V V 2m / s +
  • Innsíða - loftmynd

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.