Laufabrauðssetur

Laufabrauðssetur Mynstrað munngæti er verkefni sem að snýr að mynsturgerð í íslenskri matarhefð. Vissir þú að íslenskt laufabrauð er einstakt í heiminum?

Laufabrauðssetur

Strandgötu 43
600 Akureyri
Sími 896 4341
www.laufabraud.is

Laufabrauð er hátíðarbrauð okkar íslendinga, mynstrað munngæti sem á sér enga hliðstæðu í öðrum löndum. Fyrir jól safnast fjölskyldur og vinir saman og njóta samveru þar sem ungir jafnt sem aldnir gera sitt besta til að fegra laufabrauðið. Gömul mynstur eru rifjuð upp og ný verða til.

Laufabraudssetrid2LaufabraudLaufabrauðssetur opin vinnustofa:

- lifandi hefð

- sýning á fagurlega skreyttum laufabrauðskökum

- íslensk hönnun byggð á laufabrauðsmynstrum

Laufabrauðsdagurinn er tilhlökkunarefni. Hátíðleg samverustund lituð sköpun og tilhlökkun, allir taka þátt og önn hversdagsin víkur fyrir alþýðulist. Laufabrauð er einstakur hluti af arfleifð okkar íslendinga. Örþunn útskorin laufabrauðskaka þróuð í áranna rás af hagsýni, hagleik og menningu er gimsteinn í matarmenningu íslensku þjóðarinnar.

Njóttu mynstraðs munngætis með viðhöfn og virðingu.

Sumaropnun 2010:

  7.júní - 1.september:
13.00 - 17.00 virka daga og skv. samkomulagi aðra daga. 

Höfum til sölu kort með laufabrauðsmyndum ásamt skýringartexta á fjórum tungumálum. Kortin eru þríbrotin 18x18 cm. kremuð að lit og þeim fylgja umslög.


 
V V 2m / s +
  • Innsíða - Viking tröll

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.