Garðurinn er einn af fegurstu perlum Akureyrarbæjar. Stofnað var til hans fyrir forgöngu kvenna og stóð frú Anna Schiöth þar í
fararbroddi. Í garðinum er að finna brjóstmynd af frú Margarethe Schiöth, tengdadóttur Önnu sem hélt starfinu áfram, og á
stöpul hennar er letrað "Hún gerði garðinn frægan".
Lystigarðurinn er nú í eigu Akureyrarbæjar en hann var opnaður árið 1912. Í honum má finna nánast allar þær plötur er
finnast á Íslandi eða um 450 tegundir og rúmlega 6.000 erlendar tegundir.
Garðurinn er opinn frá 1. júní til 30. september frá klukkan 8:00 - 22:00 virka daga en 9:00 - 22:00 um helgar.
Starfsmenn Lystigarðsins halda úti fróðlegri heimasíðu þar sem er að finna hafsjó upplýsinga um plöntur og fleira.
Flýtilyklar
Lystigarðurinn á Akureyri
Leit
Svæði
V 2m / s
+5°



Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.