Merk tré á Akureyri

Merk tré á Akureyri Allt frá því að trjárækt hófst á Íslandi í einhverjum mæli í kringum aldamótin 1900, hefur Akureyri staðið feti framar öðrum

Merk tré á Akureyri

Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur, í samvinnu við Akureyrarbæ, gefið út bækling um nokkur af merkilegri trjám í bæjarlandi Akureyrar. Þar eru birtar myndir af trjánum, staðsetning þeirra kortlögð, fjallað um uppruna og birt hæðarmæling frá því í ágúst 2005.

Bæklingurinn er gefinn út í tilefni 75 ára afmælis félagsins sem var 11. maí árið 2005 og er ætlað að auðvelda áhugafólki um trjárækt að finna merk tré í bænum og njóta þeirra.

Allt frá því að trjárækt hófst á Íslandi í einhverjum mæli í kringum aldamótin 1900, hefur Akureyri staðið feti framar öðrum bæjarfélögum á landinu á því sviði. Akureyri hefur stundum verið kölluð ?bærinn í skóginum? og ekki að ástæðulausu.

Bæklinginn er hægt að skoða á pdf-formi.




 
V V 2m / s +
  • Innsíða - Viking tröll

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.