Jól og áramót á Akureyri (desember - janúar)

Jól og áramót á Akureyri (desember - janúar) Jól og áramót á Akureyri eru með hefðbundnu sniði. Á Þorláksmessu er mikið um tónleika, ys og þys, en eftir

Jól og áramót á Akureyri (desember - janúar)

Jól og áramót á Akureyri eru með hefðbundnu sniði. Á Þorláksmessu er mikið um tónleika, ys og þys, en eftir það tekur við rólegheitatími. Margir gististaðir eru opnir um hátíðarnar og eins nokkrir veitingastaðir sem meðal annars bjóða upp á hátíðarmatseðil. Stefnt er að því að skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verði opið alla daga nema aðfangadag. Á gamlárskvöld er boðið upp á brennu við Réttarhvamm, haldin böll og skemmtanir auk þess sem bæjarbúar taka þátt í hátíðarhöldunum með miklum myndarbrag með því að skjóta upp flugeldum um miðnætti. Einnig eru hátíðarhöld í Hrísey og Grímsey og þar m.a. brennur á gamlárskvöld.

Til að fá yfirsýn yfir þá viðburði og afgreiðslu og opnunartíma sem eru í gildi um hátíðarnar má skoða meðfylgjandi yfirlit:

Afgreiðslutími og afþreying um jól og áramót 2018/2019
Yfirlit yfir helstu viðburði um jólin 20.12 - 26.12 2018
Yfirlit yfir helstu viðburði um áramótin 26.12 2018 - 2.01 2019
Almennt viðburðaryfirlit Akureyrarbæjar

Einnig má hér sjá aðventudagskrána (gildir til 23.12 2018)

Fyrir þá sem hyggja á ferð til Akureyrar um hátíðarnar og eru ekki á einkabíl, má skoða eftirfarandi samgöngur:
*Air Iceland Connect
*Bílaleigubílar
*Áætlunarferðir strætó


Alskýjað NNV NNV 3m / s
  • Innsíða 2016 - Leirutjörn

Lonely planet         

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Rósenborg, Skólastíg 2
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa (hjá) akureyri.is

Lestu um Akureyri á

Við erum á Facebook

Vakinn Quality - certified travel serviceFacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.

Skráðu þig á póstlistann