Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Flýtilyklar
Líkamsrækt, sund, dekur
Abaco heilsulind
Abaco er ein best búna heilsulind landsins og býður upp á margþætta þjónustu. Þar starfa nuddarar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingur, sjúkraliði og sjúkraþjálfari.
Lesa meira
Aqua Spa
Aqua Spa er nudd- og snyrtistofa og býður upp á allar helstu nudd og snyrtimeðferðir. Í aqua Spa starfa 4 snyrtifræðingar og 8 nuddarar. Í Aqua Spa er boðið upp á sjúkranudd og þar starfar einnig Kírópraktor.
Lesa meira
Átak heilsurækt Skólastíg
Átak heilsurækt við Skólastíg opnaði í Janúar 2010. Þar er boðið upp á stóran tækjasal með miklu úrvali af líkamsræktartækjum ásamt lóðum, boltum, TRX, bjöllur, Bozu og öllu því sem þarf til þess að geta æft markvisst.
Lesa meira
Átak heilsurækt Strandgötu
Ein stærsta líkamsræktarstöðin á landsbyggðinni er til húsa í Strandgötu 14. Húsið er byggt út í sjó og er útsýnið því mikið. Húsið er 1.500 fm að stærð og öllum þægindum búið.
Lesa meira
Hár & heilsa
Hár&Heilsa er samheiti fyrir nudd- og snyrtistofuna Betri líðan og hárgreðslustofuna Strukturu. Hár & heilsa er í miðbæ Akureyrar í sama húsi og Sjallinn. Betri líðan er elsta starfandi nudd- og snyrtistofa Akureyrar, stofnuð 17. júní 1986.
Lesa meira
Heilsukjarninn
Heilsukjarninn er í húsakynnum Sundlaugar Akureyrar. Þar starfa nuddarar, heilari og hómópati. Boðið er upp á hefðbundið heilsunudd, heilun og viðtöl hjá hómópata, en að auki er tekið við hópum í slökun í innisundlauginni og indíánagufu sem er um tveggja klukkustunda meðferð með ýmsum gjörningum.
Lesa meira
Líkamsræktin Bjarg
Á líkamsræktarstöðinni Bjargi eru þrír 12 manna heitir pottar, stórt eimgufubað úti og saunaböð í báðum klefum. Snyrtiaðstaðan er glæsileg, sem og tækjasalurinn og hóptímasalirnir. Hópar geta fengið heilsueflingardaga á Bjargi; það felst í kennslu í líkamsrækt, matreiðslukennslu, slökun og nuddi við pottinn.
Lesa meira
Snyrtistofan Lind
Á Snyrtistofunni Lind er boðið upp á andlitsböð, litun og plokkun með heitsteinanuddi, fótsnyrtingu, handsnyrtingu, vaxmeðferðir, förðun, gervineglur og Tattoo. Einnig eru í boði öll helstu nudd: Slökunarnudd, heilsunudd, sogæðanudd, meðgöngunudd, ilmolíunudd og partanudd.
Lesa meira
Sundlaugar á Akureyri, Hrísey og Grímsey
Tvær sundlaugar eru á Akureyri. Sundlaug Akureyrar er með tvær laugar auk tveggja rennibrauta, busllaug, innilaug, fjóra heita potta, eimbað, gufubað, ljósalampa og fjölskyldugarð. Glerárlaug er innilaug og á útisvæði laugarinnar eru tveir heitir nuddpottar og vaðlaug auk útkilefa.
Lesa meira
Leit
Svæði
SA 2m / s
-1°











Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.