Menning og söfn

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Menning og söfn

Akureyrarvaka

Akureyrarvaka

Akureyrarvaka er bæjarhátíð sem haldin er þann laugardag sem næst liggur afmæli Akureyrarbæjar, 29. ágúst. Hátíðin markar jafnframt lok Listasumars, listahátíðar sem stendur frá Jónsmessu til ágústloka.
Lesa meira
Amtsbókasafnið á Akureyri

Amtsbókasafnið á Akureyri

Amtsbókasafnið er eitt stærsta almenningsbókasafn landsins. Það er til húsa í glæsilegri byggingu við Brekkugötu 17 og er tilvalið að heimsækja það þó ekki væri til annars en að skoða húsakynnin.
Lesa meira
Áramótin á Akureyri

Áramótin á Akureyri

Áramótin á Akureyri verða með hefðbundnu sniði nú sem endranær. Boðið verður upp á brennu við Réttarhvam, haldin eru böll og skemmtanir auk þess sem bæjarbúa taka þátt í hátíðarhöldunum með miklum myndarbrag með því að skjóta upp flugeldum um miðnætti.
Lesa meira
Davíðshús

Davíðshús

Hús Davíðs Stefánssonar, skáldsins frá Fagraskógi er staðsett í Bjarkastíg númer 6.  Davíð byggði húsið og bjó í því til dauðadags 1964. Á efri hæð hússins er íbúð hans varðveitt eins og hann skildi við hana. Þar er geysimikið bókasafn.
Lesa meira
Festarklettur-listhús

Festarklettur-listhús

Í Festarkletti-listhúsi eru sýnd verk eftir listmálarann Óla G. Jóhannsson.
Lesa meira
Flugsafn Íslands

Flugsafn Íslands

Flugsafn Íslands er staðsett á Akureyrarflugvelli.  Þar er að finna fjölbreytt úrval flugvéla og annarra sýningargripa sem tengjast íslenskri flugsögu.
Lesa meira
GalleríBox - Myndlistarfélagið

GalleríBox - Myndlistarfélagið

Myndlistarfélagið hefur umsjón með GalleríBOX sem er íslenskt gallerí sem veitir bæði athygli þeirri listræni sköpun sem á sér stað í næsta nágrenni sem og á stærra sviði. 
Lesa meira
Græni Hatturinn

Græni Hatturinn

er bar sem býður upp á fjölbreytt úrval drykkja og lifandi tónlist. Græni Hatturinn er staðsettur á neðri hæð Bláu Könnunnar.
Lesa meira
Gudmanns Minde, Gamli spítali

Gudmanns Minde, Gamli spítali

var reistur árið 1835 og var læknisbústaður til að byrja með. Árið 1872 keypti Friðrik Gudmann kaupmaður húsið.  Þetta var fyrsti spítalinn á Akureyri og var húsið upp frá því kennt við minningu hans og nefnt Gudmanns Minde.
Lesa meira
Héraðsskjalasafnið

Héraðsskjalasafnið

Hlutverk safnsins sem er undir þaki Amtsbókasafnsins, er söfnun og varðveisla skjala og annarra skráðra heimilda héraðssögunnar, til notkunar fyrir stjórnsýslu, stofnanir og einstaklinga.
Lesa meira
Holt hús Öldu Halldórsdóttir - Hrísey

Holt hús Öldu Halldórsdóttir - Hrísey

Alda Halldórsdóttir var fædd árið 1913 og bjó hún í Holti ásamt móður sinni. Mikið af hannyrðum eftir Öldu eru í húsinu einnig er mikið af ljósmyndum af vinum hennar og ættingjum. Í Holti er nú vísir að byggðasafni.
Lesa meira
Hugarflugsfundur um gerð nýrrar menningarstefnu Akureyrarbæjar

Hugarflugsfundur um gerð nýrrar menningarstefnu Akureyrarbæjar

Vinna við gerð nýrrar menningarstefnu fyrir Akureyrarbæ stendur nú yfir. Hér má sjá niðurstöður fimm hópa sem hafa skoðað stöðu menningarmála út frá eftirfarandi fimm listgreinum: Sviðslistum, sjónlistum, ritlist, menningararfinum (söfn og sögu) og tónlist.
Lesa meira
Hús Hákarla Jörundar - Hrísey

Hús Hákarla Jörundar - Hrísey

Í þessu elsta húsi Hríseyjar er nú búið að koma upp vísi að sýningu sem tengist hákarlaveiðum við strendur Íslands fyrr á öldum. Húsið var byggt á árunum 1885-86 af Jörundi Jónssyni, eða Hákarla-Jörundi úr timbri norskra skipa er fórust við Hrísey, þann 11. september 1884.
Lesa meira
Iðnaðarsafnið á Akureyri

Iðnaðarsafnið á Akureyri

Iðnaðarsafnið er safn atvinnulífs seinni alda á Akureyri þar sem sérstök áhersla er lögð á iðngreinar og fyrirtæki á því sviði. Sýndar eru vélar, framleiðsluvörur og myndir af fólki að störfum.
Lesa meira
Karlakór Akureyrar - Geysir

Karlakór Akureyrar - Geysir

Æfingar kórsins eru á mánudögum og miðvikudögum frá 20 til 22. Byrjað er að æfa um miðjan september og stendur vertíðin yfir fram í maí. Allir, sem áhuga hafa á að vera með í skemmtilegum og gefandi félagsskap, ættu að drífa í að hafa samband.
Lesa meira
Kunstraum Wohnraum

Kunstraum Wohnraum

KUNSTRAUM WOHNRAUM var stofnað af Hlyni Hallssyni og Jan Fehlis árið 1994. Á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur hafa listamenn haldið sýningar síðan.
Lesa meira
Kvennakór Akureyrar

Kvennakór Akureyrar

Kvennakór Akureyrar var stofnaður árið 2001 en fyrstu drög að kórnum ná aftur til ársins 1997 þegar hópur kvenna tengdar íþróttafélaginu KA ákvað að stofna blandaðan kór sem syngi aðallega létta dægurtónlist. Illa gekk að fá karlaraddir í kórinn, og var honum þá breytt í kvennakór.
Lesa meira
Leikfangasýningin Friðbjarnarhúsi

Leikfangasýningin Friðbjarnarhúsi

Í Friðbjarnarhúsi er sýning á leikföngum í eigu Guðbjargar Ringsted.  Leikföngin eru öll frá síðustu öld.  Á efri hæð hússins er fundarsalur Góðtemplarareglunnar sem gaf Akureyrarbæ húsið en Góðtemplararegla Íslands var stofnuð í húsinu, sem er kennt við Friðbjörn Steinsson. 
Lesa meira
Leikfélag Akureyrar

Leikfélag Akureyrar

Starfsemi Leikfélags Akureyrar er viðamikil. LA setur upp þrjár til fjórar leiksýningar árlega auk þess að standa fyrir komu gestasýninga til Akureyrar. 
Lesa meira
Listagilið

Listagilið

Miðpunktur listalífsins á Akureyri er í Kaupvangsstræti, nánar tiltekið í Grófargili sem í daglegu tali er nefnt Listagil.
Lesa meira
Listasafnið á Akureyri

Listasafnið á Akureyri

Listasafnið á Akureyri er yngsta listasafnið á landinu og jafnframt það eina sinnar tegundar utan höfuðborgarsvæðisins. Listasafnið á Akureyri leggur áherslu á að virkja sem flesta til þátttöku, að fræða almenning um sjónlistir og efla umræðu um samfélagið, menningu og listir þar sem safnkennsla og fyrirlestrahald skipar stóran sess.
Lesa meira
Listasumar á Akureyri

Listasumar á Akureyri

Listasumar er fyrir löngu orðið að föstum lið í sumarflórunni á Akureyri og setur mikinn og hátíðlegan svip á bæinn. Hátíðin hefst á Jónsmessuleik í Kjarnaskógi.
Lesa meira
Menningarhúsið HOF

Menningarhúsið HOF

Menningarhúsið Hof var formlega opnað 28. ágúst 2010. HOF verður menningarhús Norðlendinga og í raun allra landsmanna. Það skapar verðugan ramma um menningar- og tónlistarlíf með því að bjóða upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir fjölbreytilega viðburði á sviði tónlistar, leiklistar, danslistar og ráðstefnuhalds.
Lesa meira
Menningarmiðstöðin, Listagili

Menningarmiðstöðin, Listagili

Menningarmiðstöðin í Listagili er í eigu Akureyrarbæjar og heyrir undir menningardeild bæjarins. Forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar hefur aðsetur og skrifstofu í Ketilhúsinu í Listagili.
Lesa meira
Minjasafnið á Akureyri

Minjasafnið á Akureyri

Starfsemi Minjasafnsins á Akureyri er afar fjölbreytt og stendur safnið fyrir fjölmörgum viðburðum auk sýningarhalds. Markmið Minjasafnsins er að safna, varðveita og rannsaka menningarsögulegar minjar, einkum þær sem eru lýsandi fyrir daglegt líf og atvinnuvegi í Eyjafirði.
Lesa meira
Mjólkurbúðin

Mjólkurbúðin

Mjólkurbúðin er gallerý staðsett í Listagilinu.  Í Mjólkurbúðinni er sýnd mynlist eftir íslenska og erlenda listamenn.
Lesa meira
Mótorhjólasafn Íslands

Mótorhjólasafn Íslands

Mótorhjólasafn Íslands er glænýtt safn um sögu mótorhjóla á Íslandi í yfir 100 ár. Mótorhjól, myndir og munir í glæsilegri nýrri 800 fermetra byggingu sem hönnuð er sérstaklega fyrir mótorhjólasafn.
Lesa meira
Nonnahús

Nonnahús

Nonnahús er talið byggt árið 1849. Akureyrarbær á húsið og er þar safn til minningar um rithöfundinn og prestinn Jón Sveinsson, Nonna (1857-1944). Húsið var friðað samkvæmt þjóðminjalögum árið 1978 og er að flestu leyti gott dæmi um elstu timburhúsagerðina.
Lesa meira
Norðanbál - gestavinnustofa í Hrísey

Norðanbál - gestavinnustofa í Hrísey

Listahópurinn Norðanbál rekur gestavinnustofu í Gamla barnaskólanum í Hrísey.  Hann er innréttaður  með vinnustofu og þremur svefnherbergjum til útleigu fyrir listamenn hvaðanæva úr heiminum.
Lesa meira
Populus tremula

Populus tremula

Populus tremula er menningarsmiðja, rekin af sjálfstæðu félagi listamanna úr ýmsum greinum, bæði sem vinnustofa og sem vettvangur menningarviðburða af ýmsu tagi.
Lesa meira
Sigurhæðir

Sigurhæðir

Í Sigurhæðum er Matthíasarstofa, minningarsafn um Sr. Matthías Jochumsson (1835-1920) en hann lét reisa húsið árið 1903. Þar eru jafnframt til leigu skrifstofuherbergi, búin allri nýjustu tækni og ætluð skáldum og fræðimönnum til skapandi skrifa.

Lesa meira
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Hljómsveitin heldur að jafnaði 5-7 tónleika á hverju starfsári auk skólatónleika í grunnskólum á Norðurlandi.
Lesa meira
VeggVerk

VeggVerk

VeggVerk er heiti á sýningarrými sem er á vesturhlið Strandgötu 17 á Akureyri.
Lesa meira
 
SA SA 2m / s -1°
  • Mynd 4

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.