Áramótin eru að vanda skemmtilegur tími þar sem hægt er að fara á brennu ekki bara á Akureyri, heldur einnig
í Hrísey og á Grímsey. Mikið er um flugelda og haldin eru böll og skemmtanir víðsvegar um bæinn.
Á Hótel Kea og Icelandair hótelinu á
Akureyri verður opið fyrir gesti og gangandi um áramótin. Boðið verður uppá hátíðarkvöldverð bæði gamalársdag og
nýársdag. Nauðsynlegt er að panta borð tímanlega á báðum stöðum.
Á hótel Kea í síma 460 2000 eða á netfang hótelsins kea@keahotels.isí
Á Icelandair hótelinu í síma 5181000 eða á netfang hótelsins akureyri@icehotels.is.
Opið verður í Hlíðarfjalli í kringum áramótin og fyrir þá sem vilja fara í skipulagðar ferðir er boðið upp á
fjölbreyttar ferðir s.s. jeppaferðir, sælkeraferðir, norðurljósaferðir o.s.frv.
Opnunartíma Upplýsingamiðstöðvarinnar, ýmissa verslana, sundlauga, Hlíðarfjalls, gististaða, veitingastaða og fl. frá 23. des. 2011 - 3. janúar 2012 má sjá HÉR
Viðburðir og skemmtanir:
29.desember. Fimmtudagur
Flóra – Snorri Ásmundsson gjörningur og listamannsspjall kl. 20 – 22.00
Leikfélag Akureyrar – Hundur í óskilum sýnir Saga þjóðar. Sýnt í Rýminu kl. 19.00
Amtsbókasafnið – Blíðir bókasafnstónleikar með Svavari Knút kl. 17.00
30.desember. Föstudagur
Græni hatturinn – Helgi og hljóðfæraleikararnir kl. 22.00
Populus Tremula – Áramóta uppgjör kl. 22. Fjölbreytt dagskrá að hætti hússins.
Lón – Harmonikudanslekur kl. 22.00 – 02.00. Jóladansleikur
Sjá einnig opnun á Götubarnum, Kaffi Akureyri, Kaffi Amor, Pósthúsbarnum ofl.
31.desember, Gamlársdagur, laugardagur
Brenna við Réttarhvamm kl. 20.30, brenna í Hrísey kl. 17.00 og í Grímsey kl. 20.00
Flugeldasýningin við Réttarhvamm hefst kl. 21.00. Að sýningunni standa Hjálpasveitin Súlur, Akureyrarbær og Vinir Akureyrar (Greifinn, Strikið,
Sprettur-Inn, Bautinn, Kjarnafæði, Kristjánsbakarí, Rafeyri, Norðlenska, Finnur hef., Bakaríið við brúnna, Bílaleiga Akureyrar, Kea
hótel, Túnþökusala Kirstinns, Gallerí). Flugeldasala Hjálpasveitarinnar er opin frá kl. 9 – 16.
Sjallinn – Páll Óskar. Húsið opnar kl. 1.30
Sjá einnig opnun á Götubarnum, Kaffi Akureyri, Kaffi Amor, Pósthúsbarnum ofl.
Til að komast til Akureyrar er hægt að panta flug með Flugfélagi Íslands, taka á leigu bílaleigubíl, auk þess sem ferðast má með áætlunarferðum rútu nú eða einfaldlega á eigin bíl.




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.