Akureyrarvaka er bæjarhátíð sem haldin er síðustu helgina í ágúst í tilefni afmælis Akureyrarbæjar, 29. ágúst. Hátíðin markar jafnframt lok Listasumars, listahátíðar sem stendur frá Jónsmessu til ágústloka. Akureyrarvaka er sett í Lystigarðinum á föstudagskvöldinu. Garðurinn er þá skrautlýstur og þykir mörgum rölt um garðinn í rökkurró hinn eini sanni hápunktur Akureyrarvöku.
Sjá dagskrána hér að neðan, með fyrirvara um breytingar.
AKUREYRARVAKA 2011 26. og 27. ÁGÚST
FÖSTUDAGURINN 26. ÁGÚST
*Kl 17.00 Menningarhúsið Hof. Hangandi skúlptúrar í skóstærð. Árleg sýning Myndlistarfélagsins.
Myndlistarfélagið opnar sýningu í Hofi, á Akureyrarvöku og kynnir starfsemi sína með hangandi skúlptúrum í skóstærð.
Myndlistarfélagið var stofnað í janúar árið 2008 og er eitt aðildarfélaga Sambands íslenskra myndlistarmanna. Í því eru nú rúmlega 100 myndlistarmenn, flestir búsettir á Akureyri eða á Norðurlandi en félagið er opið öllum myndlistarmönnum.
Megin tilgangur félagsins er að vera málsvari myndlistarmanna, gæta hagsmuna þeirra og bæta kjör og starfsgrundvöll þeirra. Einnig að
efla umræðu um myndlist og auka þekkingu og fræðslu um myndlist og auka samvinnu myndlistarmanna.
*Ljósmyndasýning í glugga Pedrómynda Inga Vestmann áhugaljósmyndari opnar sýninguna "rauðhærðir" í glugga
Pedrómynda.
Þema sýningarinnar eru rauðhærð börn, konur og karlmenn.
*Kl 20.00 Menningarhúsið Hof. ?Óperutöfrar? Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur starfsár sitt með töfrum óperunnar.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur starfsárið 2011-2012 með óperutónleikum á Akureyrarvöku þann 26. ágúst kl. 20:00 í Hofi á Akureyri. Tónleikarnir bera yfirskriftina Óperutöfrar.
Hér sameina krafta sína undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar hluti af landsliði íslenskra einsöngvara og skagfirski Karlakórinn Heimir. Þetta eru þau Helga Rós Indriðadóttir, Sigríður Aðalsteinsdóttir, Gissur Páll Gissurarson og Ágúst Ólafsson.
Á efnisskránni eru valin atrið úr óperunum La Bohem, Toska, Rakaranum frá Sevilla Tannhauser og Carmen.
Miðasala á
tónleikana á www.menningarhus.is og í Hofi
*KVEIKT VERÐUR Á HJARTANU Í VAÐLAHEIÐI
Starfsmenn fyrirtækisins Rafeyri hafa yfirfarið hjartsláttinn og nú
mun það slá á ný í rökkrinu.
*Kl 21.00 Lystigarðurinn á Akureyri. Setning Akureyrarvöku verður að venju í Lystigarðinum. Garðurinn verður með
rómantískum blæ, upplýstur og fallegur.
Veittar verða viðurkenningar fyrir fallegustu garða bæjarins og bestu matjurtagarðana.
Á göngu um garðinn munu gestir rekast á salsadansara, álfar bjóða til veislu, Helgi og hljóðfæraleikararnir sjá um
tónlistina og hlýleiki umvefur garðinn.
*Kl 22.00 Bryggjuball á Torfunefsbryggju, hljómsveitin "Einn og sjötíu" með Snorra Guðvarðarsson og Ragnheiði
Júlíusdóttur í fararbroddi. Á miðnætti verður rómantísk sigling um Pollinn.
Hollvinir
eikarbátsins Húna ll standa fyrir bryggjustemmningunni.. Aðgangseyrir kr 1500. Rómantísk sigling um Pollinn á
miðnætti.
*Kl 22.30 ? 23.30 Innbærinn. Draugaslóð Minjasafnsins, Leikfélags Hörgdæla og Leikfélags Akureyrar. Draugalegt og
drungalegt, hljóð og óhljóð.
Minjasafnið verður lokað á meðan Draugaslóðin stendur yfir.
*Kl 22.00 - 01.00 Græni hatturinn. Bítladrengirnir Blíðu ásamt Agli Ólafssyni og Gunnari Þórðarssyni flytja allt það besta frá bestu hljómsveitinni Bítlunum.
Allt það besta frá bestu hljómsveit allra tíma The Beatles. Allt frá All my loving til Abbey Road svítunnar. Bítladrengirnir
eru: Ásgeir Óskarsson, Eðvard Lárusson, Magnús Einarsson og Tómas M.Tómasson.
LAUGARDAGURINN 27. ÁGÚST
*Kl 08.00-12.00 Þátturinn Bergsson&Blöndal á RÁS 2 verður sendur beint út frá Akureyrarvöku og fer
útsendingin fram í Menningarhúsinu Hofi.
Margrét Blöndal og Felix Bergsson vakna með hlustendum og fylgja þeim inn í
helgina.
*Kl 10.30 Gamla gróðrarstöðin á Krókeyri. Garðyrkjufélag Akureyrar færir Akureyrarbæ silfurreyni að gjöf. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri veitir trénu viðtöku og gróðursetur ásamt félögum Garðyrkjufélagsins.
Í tilefni af 125 ára afmæli Garðyrkjufélags Íslands langar félagið að færa Akureyringum silfurreyni að gjöf. Gjöf þessi er táknræn fyrir þann garðræktaráhuga sem hefur blómstrað á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu, því eins og kunnugt er þá hafa Akureyringar verið ötulir við garðrækt og trjárækt í gegnum tíðina. Þessi áhugi hefur blómstrað sérstaklega síðustu ár. Tréið sem Akureyringar fá nú að gjöf er vefjaræktað eintak af elsta innflutta garðatrénu á Íslandi sem enn lifir en um er að ræða silfurreyni (Sorbus intermedia) sem stendur í Fógetagarðinum við Aðalstræti í Reykjavík. "Móðurtréið" var á sínum tíma gróðursett árið 1884 af Schierbeck landlækni sem átti meðal annarra forgöngu að stofnun Garðyrkjufélagsins (Hins íslenska garðyrkjufélags) árið 1885.
*Kl 11.00 Glerártorg - sýningargluggi BT. Ljósmyndasýning áhugaljósmyndarans Jóns Óskars
Ísleifssonar. Sýningin stendur yfir frá 27.-31. ágúst.
*Kl 11.00-18.00 Ljósmyndasýningin Inn og út um gluggann. Ljósmyndir eftir Höllu og Hildi Óladætur.
Sýningin er í sýningarsal BSA Laufásgötu 9 og stendur yfir til 4. september.
*Kl 11.00 Opið hús á Furuvöllum 13.2 hæð. Gerður Ósk Hjaltadóttir og Jóhanna Hildiberg kynna krakkajóga og Bowen
og TFT meðferð.
Kl.11 verður krakkajóga hjá Gerði. Öll börn velkomin. Jóhanna verður með spjall og kynningu
á Bowen og TFT meðferðum. Heitt á könnunni.
*Kl 11.00 Eikarbáturinn Húni og leikskólinn Hólmasól fara í árlega friðarsiglingu um Pollinn.
Leikskólabörnin senda flöskuskeyti með friðarboðskap út í hið stóra Atlantshaf.
*Kl 11.00-18.00 HRÍM kveður Listagilið með partýi og hönnunarbrjálæði.
Lifandi tónlist, birkisnagar
og snakk. Einnig opið kl 20.00-22.00.
*Kl 12.00-13.30 AkureyrarAkademían 5 ára með söng, fræði og böku í Gamla húsmæðraskólanum.
Opið
hús og dagskrá sem Arna Valsdóttir opnar með söng, Margrét Helgadóttir, sagnfræðingur heldur erindið ?Gullöld
húsmæðra?, fyrsti heiðursfélagi Akademíunnar verður heiðraður, uppskeruhátíð að hætti hagsýnna
húsmæðra.
*Kl 12.00 Mini-ljósmyndasýning í Eymundsson. Gamlar myndir úr KEA húsinu til sýnis.
Myndirnar eru
úr safni Gunnlaugs P. Kristinssonar og eru í eigu/vörslu Minjasafnsins á Akureyri. Sýningin stendur yfir 27. - 31. ágúst.
*Kl 12.00-18.00 Ráðhústorg 7. 2. hæð. Opið hús á vinnustofum hönnuða.
Þar eru Múndering, ODDdesign, Guðrún Hrönn fótógrafía og Breyta arkitektar sem bjóða alla velkomna að kíkja og kynna sér
þá skapandi starfsemi sem fer þar fram. Ljósmyndasýning ? Guðrún Hrönn ljósmyndari. Tískusýning ? ODDdesign
fatahönnun. Sýning á hugmyndavinnu hönnuða fyrir Lystigarðinn á Akureyri ? Breyta arkitektar. Einnig verður opið klukkan 20-23.
*Kl 12.45-16.00 Þátturinn Helgarvaktin á Rás 2 verður sendur beint út frá Akureyrarvöku og fer útsendingin fram
í Menningarhúsinu Hofi.
Heiða Ólafsdóttir og Ævar Þór Benediksson fylgja hlustendum.
*Kl 13.00-14.30 Söngur og súkkulaði að Galtalæk.
Gestgjafar eru Hilda Torfadóttir húsmóðir og Snorri
Guðvarðarson tónlistarstjóri. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Enginn aðgangseyrir, en tekið á móti frjálsum framlögum,
sem ganga til Parkinsonfélags Akureyrar og nágrennis.
*Kl 13.00 Nostalgíuflipp í hlöðunni í Litla Garði.
Hilda og Skúli flytja nostalgíulög og Kalli
Hallgríms líka. Vínill og kaffi.
*Kl 13.00 Flóamarkaður á vegum Kórs Akureyrarkirkju í kirkjutröppunum.
Flóamarkaðurinn hefst um kl. 13 og stendur eins lengi fram eftir degi og birgðir endast. Til sölu verður ýmiss varningur sem kórfélagar
eiga í fórum sínum t.a.m. bækur, búsáhöld, fatnaður, töskur og skór. Einnig verður á boðstólum heitt
kakó og kleinur. Gestir og gangandi mega eiga von á óvæntum tónlistaratriðum frá einhverjum hæfileikaríkum kórmeðlimum sem
gætu jafnvel átt það til að bresta í söng og spil.
*Kl 13.00 BarnaGaman á Ráðhústorgi í umsjá Fimleikafélags Akureyrar.
Sápukúlublástur, sippubönd, snúsnú, myndastyttuleikur, teygjó, andlitsmálning og krítar.
Barnagaman er
í umsjá Fimleikafélags Akureyrar.
*Kl 13.00 - 17.00 Norðurport lifandi markaður, á bílastæðinu við Skipagötu.
Allt á milli himins og jarðar
sem skrýða skal skemmtilegan flóamarkað.
*Kl 13.-15.00 Norðlenska í samvinnu við Bautann og Landssamband íslenskra kúabænda bjóða upp á heilgrillað
naut.
Herlegheitin verða staðsett á bílastæðinu við Skipagötu.
*Kl 13.00 Sprell leiktæki verða á planinu við Skipagötu fram á miðnætti.
Ef vel viðrar verður einnig
opið í tækin á sunnudeginum.
*Kl 14.00 Eyfirskir villisveppir á Eiðsvelli. Tíundu bekkingar Oddeyrarskóla og foreldrar þeirra bjóða gestum að bragða á rjómalöguðum villisveppum og sýna ýmsar tegundir sveppa.
Ef sveppir spretta á Akureyrarvöku þá ætla 10. bekkingar Oddeyrarskóla og foreldrar þeirra að bjóða gestum að bragða á rjómalöguðum villisveppum úr skógum í grennd við bæinn. Sveppir verða steiktir úti undir berum himni á Eiðsvelli sem er eitt af grænum svæðum á Eyrinni og liggur að Glerárgötu rétt við miðbæinn. Kveikt verður á prímusnum upp úr kl. 14 og steikt fram eftir degi. Boðið verður upp á sveppina á brauðsneið gegn hæfilegu framlagi í ferðasjóð bekkjarins. Og til að menn geti ákveðið hvort þeir leggi í heila brauðsneið verður boðið upp á ókeypis bragðprufur og eitthvað til þess að drekka með.
Einnig verður stillt upp nokkrum sveppum úr skóginum, sveppum sem líklegt er að fólk rekist á t.d. í lerkiskógum og stendur
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands fyrir þeirri sýningu. Forskot
á Dag sveppsins sem haldinn er á hinum Norðurlöndunum fyrsta sunnudag septembermánaðar).
*FAB Travel Tourist Center Strandgötu 49 opnar klukkan 13 og opið frameftir kvöldi.
Norðlenskt handverk og hönnun á fjallaloftinu opið
13-17, ITA ferðamannaverslun opin frá 13 - 19, Fuglinn kaffihús og skemmtidagskrá í húsinu.
*Kl 13.00-17.00 Opið hús hjá Félagi harmonikkuunnenda í Eyjafirðinum í Laxagötu 5.
Heitt á könnunni, gripið verður í nikku og eru allir hjartanlega velkomnir.
*Kl 13.00-17.00 Minjasafnið á Akureyri, Nonnahús, Davíðshús og Sigurhæðir opin.
Enginn
aðgangseyrir.
*Kl 13.00-17.00 Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi.
Komdu nokkur ár aftur í tímann og sjáðu m.a.
leikföng sem fengust í verslunum gömlu Akureyrar: Vöruhúsinu, Amaro, Verslun Brynjólfs Sveinssonar, ,,Sigga Gúmm''
ofl.
Friðbjarnarhús er opið alla daga klukkan 13-17.
*Kl 14.00 ? 16.00 Amtsbókasafnið. Skoppaðu á bókasafnið.
Það verður sögustund og veittar viðurkenningar fyrir ?skoppaðu á bókasafnið? og svo verður heitt á
könnunni.
*Kl 14.00 FAB Travel Tourist Center Strandgötu 49 - Söngstund með krökkunum í boði söngskóla HBI
VOCALIST.
Heimir Ingimarsson stjórnar, allir krakkar velkomnir.
*Kl 13.45 Klippt á borða Menningarbrautarinnar í Listagilinu.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri klippir á
borðann.
*Kl 14.00 Flóra, nýtin og náttúruleg verslun og vinnustofa í Listagilinu Kaupvangsstræti 23.
Þórarinn Blöndal, Guli skúr 8, Innsetning.
*Kl 14.00 Boxið, salur Myndlistafélagsins.
Opnun á sýningu Hlyns Hallssonar og Jónu Hlíf Halldórsdóttu ?Byltingin var gagnslaus?. Lýkur 11. september.
"Verk Hlyns og Jónu eru allt í senn einföld, fjölbreytt og hugmyndaauðug. Þau vinna með marga ólíka miðla ? Hlynur hefur fengist við ljósmyndir, vídeó, texta, gjörninga og innsetningar, Jóna hefur unnið með ljósmyndir, vídeó, texta, gjörninga og innsetningar. Verkin draga dám af því hvaða miðill verður fyrir valinu í hvert sinn en þátttaka áhorfandans er oft mikilvæg.
Í verkum beggja er að finna margbrotna en einfalda tjáningu. Verkin virðast á einhvern hátt hrein og bein og eiga greiða leið inn að hjarta- og heilarótum. Sum verkanna eru lævís, önnur kröftug, og mörg bera slagyrðingalegan brag á sér. Einfaldleikinn talar beint til manns og virðist fela í sér einhverja nánd, kannski falska (hver veit)."
*Kl 14.00 Ketilhúsið. Björg Eiríksdóttir og Hanna Hlíf Bjarnadóttir sýna.
Björg sýnir lágvær og innhverf verk þar sem meðal annars má sjá himinbláma, spegilmyndir, garð úr fortíð og
feneyjarsaum.
Verk Hönnu Hlífar eru óður til íslenskra hannyrða. Hún notar aldagömul íslensk mynstur sem
grunn í útsaumsverkin á sýningunni. Hin fornu mynstur færir hún svo í nýjan búning með því að skreyta hinn
hefðbundna krosssaum með ?glingri? úr samtímanum; plasti, pjátri og perlum. Kvenleg skreytilist að fornu og nýju verður Hönnu Hlíf þannig
fagurfræðilegur efniviður verkanna.
Sýningin er á vegum Myndlistarfélagsins. Stendur til 11. september.
*Kl 14.00 Deiglan. ?4? er heiti sýningar á verkum Margrétar Rutar.
Margrét Rut
Eddudóttir er myndlistarmaður og hefur unnið í ýmsum miðlum. Eftir að hafa tekið sér langt frí frá því að
mála, ákvað hún að leyfa sér það eitt og heldur nú sýningu sem ber titilinn ?4? í Deiglunni, Listagili á Akureyri.
Aðal uppistaða sýningarinnar eru málverk og teikningar.
Myndlist Margrétar er af súríalískum toga og ber merki um innrænt ferli. Hringrása ferli sem leiðir af sér brot af hugsun sem togast á við að vera meðvituð og rökleidd og ómeðvituð og röklaus.
*Kl 14.00 Populus tremula. ? Á milli tilvistar og tilveru?.
Joris Rademaker opnar sýningu tileinkaða Sigga.
Kristján Pétur syngur.
*Kl 14.00 Kvikmyndakúbbur Akureyrar, KvikYndi, stendur fyrir lítilli kvikmyndahátíð í Gallerý Langa gangi í
Listagilinu.
Sýndar verða stuttmyndir frá stuttmyndakeppninni Stulla, sem er fyrir ungmenni á aldrinum 14-25 ára, ásamt tveimur
myndum frá Filmumönnum, hópi fólks sem gerðu stuttar kvikmyndir á árunum 1991-1995. Munu þær rúlla yfir daginn.
*Kl 14.00 Gallerí + Brekkugötu 35. Sýningin Homeostasis.
Clementine Roy frönsk listakona opnar sýningu sem samanstendur af
videoi og insetningu.
Sýningin opnar kl. 14 á laugardaginn og er opin til kl. 17.00. Á sunnudag er opið milli kl. 14-17. Sýningin stendur bara þessa tvo
daga.
*Kl 14.00 Mjólkurbúðin , gallerí í Listagilinu. Munstur í Mjólkurbúðinni.
Guðbjörg Ringsted
opnar málverkasýningu. Á sýningunni verða málverk þar sem útsaumuð blóm flögra um myndflöt og minna á
íslensk útsaumsmynstur.
Á laugardag verður sýningin opin frá kl. 14-17 og aftur frá kl. 20, en einungis frá kl. 14-17 á sunnudag.
*Kl 15.00 Populus tremula.
Kristján Pétur syngur lög eftir Cornelius Vreeswijk.
*Kl 15.00 Listasafnið á Akureyri. Yfirlitssýning á verkum Gústavs Geirs Bollassonar.
Gústav
Geir hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér heima og erlendis og haldið tíu einkasýningar. Þetta er í fyrsta
sinn sem yfirlitssýning á verkum Gústavs Geirs.
*Kl 15.00 FAB Travel Tourist Center Strandgötu 49 - Trúbadoraveisla.
Fram koma Heimir Ingimarsson, Aron Óskarsson , Logi Ingimarsson og
Einar Höllu.
*Kl 15.00-17.00 Menningarhúsið Hof. Ljósmyndasýningin "Okkar sýn" verður opnuð utandyra sunnan við Hof.
Þetta er
sýning ÁLFkvenna sem er félagskapur kvenna á Eyjafjarðarsvæðinu sem hafa ljósmyndun að áhugamáli. Það sem einkum
einkennir konurnar er einlægur áhugi þeirra á ljósmyndun og löngun til að fræðast og betrumbæta færni sína og
tækni. Þær hafa hist reglulega til að ræða málin auk þess að fara saman í styttri og lengri ljósmyndaferðir.
Þetta er fjórða samsýning ÁLFkvenna. Þær sem sýna að þessu sinni eru; Agnes H.
Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Freydís Heiðarsdóttir, Guðný Pálína
Sæmundsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Helga Heimisdóttir, Hrefna Harðardóttir, Kristjana Agnarsdóttir, Linda
Ólafsdóttir, Margrét Elfa Jónsdóttir og Nanna Lind.
*Kl 16.00-17.00 FAB Travel Tourist Center Strandgötu 49 - Harmónikkuleikur upp á fjallaloftinu.
Ingimar Harðarson leikur fyrir
dansi. Rútuferðir fyrir eldri borgara. Upplýsingar í síma 820-0984begin_of_the_skype_highlighting 820-0984 end_of_the_skype_highlighting
*Kl 17.00 og 21.00 Menningarhúsið Hof, Afmælistónleikar Björgvins Halldórssonar.
Rifjaður verður upp einstakur ferill Björgvins í rúm 40 ár, allt frá því hann var kosinn poppstjarna ársins árið 1969 til
dagsins í dag, með viðkomu hjá HLH, Brimkló, Lónlí Blu Boys, Eurovision og Hjartagosunum og jöfnum höndum sungin Íslandslög,
rokklög, ballöður af dýrari tegundinni og kántrí.
Staðfestir gestir í afmælinu eru: Eyjólfur Kristjánsson, Jóhanna Guðrún og Krummi. Fastlega má búast við því
að fleiri gestir bætist í fögnuðinn áður en yfir lýkur.
SEINNI TÓNLEIKARNIR VERÐA SENDIR BEINT ÚT Á RÁS 2
*Kl 18.00 Íslenskir eldsmiðir munu smíða rósir á Akureyrarvöku til minningar um hörmungarnar í Noregi í júlí
síðastliðinn.
Eldsmiðirnir munu hefja smíðina kl 18.00 á gatnamótum Hafnarstrætis og Kaupvangsstrætis og smíða
fram á kvöld.
*Kl 20.00-22.00 HRÍM kveður Listagilið með partýi og hönnunarbrjálæði.Lifandi tónlist, birkisnagar og
snakk.
*Kl 20.00-23.00 Ráðhústorg 7. 2. hæð. Opið hús á vinnustofum
hönnuða.
Tískusýning ? ODDdesign fatahönnun. Sýning á hugmyndavinnu hönnuða fyrir Lystigarðinn á
Akureyri ? Breyta arkitektar. Þar eru Múndering, ODDdesign, Guðrún Hrönn fótógrafía og Breyta arkitektar sem bjóða alla velkomna
að kíkja og kynna sér þá skapandi starfsemi sem fer þar fram. Ljósmyndasýning ? Guðrún Hrönn ljósmyndari.
*KL 20.30 Kvikmyndaklúbbur Akureyrar, Kvikyndi, stendur fyrir lítilli kvikmyndahátíð í Gallerý Langa gangi í
Listagilinu. Sýndar verða myndir Filmumanna, Skotinn í skónum, Spurning um svar, Negli þig næst og GAS. Eftir sýningarnar verður
boðið upp á umræður um myndirnar.
*Kl 20.30-22.00 Hænur, kaffi, kleinur og kynjaverur í Norðurgötu 6.
Hænsnahjónin Sigurvin og Perla
í Norðurgötu 6 bjóða fólki upp á kaffi og kleinur í æfintýragarði (gengið inn frá Gránufélagsgötu)
sínum. Hænurnar verða í hátíðarskapi og kynjaverur á sveimi í trjáhýsinu.
*Kl 21.00 Menningarhúsið Hof, Afmælistónleikar Björgvins Halldórssonar.
Rifjaður verður upp einstakur ferill Björgvins í rúm 40 ár, allt frá því hann var kosinn poppstjarna ársins árið 1969 til
dagsins í dag, með viðkomu hjá HLH, Brimkló, Lónlí Blu Boys, Eurovision og Hjartagosunum og jöfnum höndum sungin Íslandslög,
rokklög, ballöður af dýrari tegundinni og kántrí.
TÓNLEIKARNIR VERÐA SENDIR BEINT ÚT Á RÁS 2
*Kl 20.30 LITRÍKUR OG LIFANDI MIÐBÆR Á LAUGARDAGSKVÖLDI Á AKUREYRI.
Einstök eyfirsk hönnun, teboð frú Ljósbráar, Frúin í ham og Eyrún heimasæta mun spinna
lög við hin ýmsu húsverk, Nostalgía Jonnu, Jana Rut hönnun, ODDdesign og Birkið í Hrím.
Sirkus Íslands sýnir það nýjasta úr sirkusheimi, Tónlistarvinnuskólinn tekur lagið, Harmonikkurnar þandar, tælenskur
dans stiginn, eldheit kúbönsk rúmba, nútímadansinn dunar, Simmi Angel, Dansfélagið Vefarinn, Skapandi sumarstörf, Tónverk, Parkour hópur
Akureyrar.
*Kl 22.00 SIRKUS ISLAND SHOW Á RÁÐHÚSTORGI
Þessi frábæri sirkus mætir á Ráðhústorg með trix sem enginn ætti að reyna heimavið.
*Kl 22.45 STÓRSVEIT FÉLAGS HARMONIKKUUNNENDA V/EYJAFJÖRÐ MEÐ HARMONIKKUBALL.
Dansinn stiginn á Ráðhústorgi, ungir sem aldnir bresta í dans með líflegum harmonikkutónum. Heybaggar verða á svæðinu
fyrir dansara sem þurfa að hvíla lúin bein.
*Kl 22.00 Græni hatturinn
Enn og aftur kemur Airwaves hátíðin með upphitun á Akureyrarvöku. Í ár eru
það Ljósvaki,
Contalgen Funeral og Of Monster and Men sem koma fram.
*Kl 23.00 FAB Travel Tourist Center Strandgötu 49 - Fíllinn kíkir í heimsókn með uppistand.
Trúbador
stemning á Fuglinum eftir miðnætti til 03:00. Heimir Ingimars og eflaust fleiri snillingar.
*Kl 23.30 Menningarhúsið Hof.
Lifandi tónlist í húsinu fram eftir kvöldi.
SUNNUDAGURINN 28. ÁGÚST
*Kl. 12.00-16.00 Menningarhúsið Hof heldur upp á ársafmæli.
Sirkus ísland kennir börnum á öllum
aldri sirkuskúnstir á milli kl. 14-16. Lifandi svipmyndir frá fyrsta starfsári Hofs verða sýndar í Hömrum,
Tónlistarvinnuskólinn leikur fyrir gesti og gangandi. Gestum verður boðið uppá afmælisköku.
Spennandi afmælistilboð í Hrím hönnunarhúsi - Afmælisbröns hjá 1862 Nordic Bistro - Miðasala Hofs verður opin þar sem hægt er að kynna sér áskriftarkort Hofs og dagskrána framundan
*Kl 13.00-15.00 Menningarhúsið Hof. Gestir út um allt.
Útvarpsþátturinn vinsæli sem sló heldur betur í gegn síðasta vetur hefur göngu sína á ný á
Akureyrarvöku.
Þátturinn verður sendur út beint á Rás 2 af sviðinu í Hamraborg í umsjón Margrétar Blöndal og Felix Bergssonar.
Tónlist,leikrit,leiknar auglýsingar,heimilisleg húsráð og óvæntar uppákomur eru á meðal þess sem verður á
dagskránni. Hljómsveit Hjörleifs Arnar Jónssonar verður á sínum stað og áhorfendur eru velkomnir í salinn til að taka
þátt í gleðinni.
*Kl 14.00 Háskólinn á Akureyri, fyrirlestrarsalur. Landnámsmennirnir í landnámi Helga
magra.
Hólmsteinn Snædal fer í máli og myndum yfir landnám Eyjafjarðar. Lesið verður upp og sagt frá
fólkinu
sem nam land í firðinum og skýrt með kortum stærð og legu hvers landnáms.
*Kl. 16.00 Ketilhúsið. Raddir norðursins. Tónleikar þar sem fram koma fjórir nemendur
stórsöngvarans Kristjáns Jóhannssonar.
Nemendurnir fjórir eru Aðalsteinn Már Ólafsson, bariton,
Kristján Jóhannesson, bassi, Una Dóra Þorbjörnsdóttir, sópran og Unnur Helga Möller, sópran. Þessi sami hópur mun halda utan til
Ítalíu í september og halda þar tónleikar og eru tónleikarnir í Ketilhúsinu á Akureyri fjáröflun fyrir
ferðina. Á tónleikunum munu þau flytja ýmsar söngperlur eftir íslensk og erlend tónskáld s.s. Jórunni Viðar,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Sigfús Einarsson, Grieg, W. A. Mozart, V. Bellini, G. Puccini, G. Verdi og R. Wagner.
Helstu styrktaraðilar Akureyrarvöku eru Norðurorka, Landsbankinn, Exton og Menningarráð Eyþings. Auk þess leggja fjölmargir hönd á
plóg um að gera Akureyrarvöku skemmtilega.
AKUREYRARVAKA verður áberandi á RÁS 2 og verða beinar útsendingar frá þættinum Bergsson og Blöndal
á laugardagsmorguninn, Helgarvaktin með Heiðu Ólafs og Ævari Þór Benediktssyni, Afmælistónleikar Björgvins Halldórssonar
í Hofi á laugardagskvöldinu og á sunnudaginn fer þátturinn Gestir út um allt aftur af stað með þau Margréti Blöndal, Felix
Bergsson og Hljómsveit hússins undir stjórn Hjörleifs Arnar Jónssonar.
Þeir sem eiga ekki heimangengt á Akureyrarvöku stilla einfaldlega á RÁS 2
Verkefnastýra Akureyrarvöku er Guðrún Þórsdóttir og er hægt að setja sig í samband við hana með því að senda póst í netfangið gunnathors@gmail.com




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.