Amtsbókasafnið á Akureyri

Amtsbókasafnið á Akureyri Amtsbókasafnið er eitt stærsta almenningsbókasafn landsins. Það er til húsa í glæsilegri byggingu við Brekkugötu 17 og er

Amtsbókasafnið á Akureyri

Brekkugötu 17
602 Akureyri
Sími: 460 1250
Fax: 460 1251
Netfang: bokasafn@akureyri.is
Heimasíða: http://www.akureyri.is/amtsbokasafn/

Amtsbókasafnið er eitt stærsta almenningsbókasafn landsins. Það er til húsa í glæsilegri byggingu við Brekkugötu 17 og er tilvalið að heimsækja það þó ekki væri til annars en að skoða húsakynnin.

Safnið býður upp á alla venjulega bókasafnaþjónustu, s.s. útlán bóka, tímarita, mynddiska, hljómdiska og hljóðbóka. Auk þess er hægt að lesa öll íslensk dagblöð á safninu og nýjustu eintök keyptra tímarita sem eru yfir 70 talsins bæði íslensk og erlend.
Hægt er að skoða heimildarmynd um sögu safnsins, sem gerð var árið 2010, á eftirfarandi slóð: http://www.youtube.com/watch?v=2I2saxEwHy4


Veittur er aðgangur að nettengdum tölvum gegn vægu gjaldi en auk þess er opinn aðgangur að þráðlausu neti í húsnæði safnsins.

Í sama húsi er rekin kaffitería þar sem hægt er að fá heitan mat í hádeginu og kaffi og kökur frá 10:00-17:00

Afgreiðslutími:

Afgreiðslutími í vetur (16. september - 15. maí):
     Mánudaga til föstudaga: kl. 10.00-19.00
     Laugardaga: kl. 11.00-16.00
     Sunnudaga: Lokað

Sjá nánari upplýsingar á: www.akureyri.is/amtsbokasafn


 
V V 2m / s +
  • Innsíða - Leirutjörn

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.