Davíðshús

Davíðshús Hús Davíðs Stefánssonar, skáldsins frá Fagraskógi er staðsett í Bjarkastíg númer 6.  Davíð byggði húsið og bjó í því til dauðadags 1964. Á efri

Davíðshús

Davíðshús

Bjarkarstíg 6
Sími: 462 4162
Netfang: minjasafnid@minjasafnid.is
Heimasíða: www.minjasafnid.is

Ættingjar Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi ánöfnuðu Akureyrarbæ húsið í Bjarkastíg 6 sem skáldið byggði og bjó í til dauðadags 1964. Á efri hæð hússins er íbúð hans varðveitt eins og hann skildi við hana. Þar er geysimikið bókasafn.

Á neðri hæð hússins er íbúð sem lista- og fræðimenn geta fengið til afnota í lengri eða skemmri tíma gegn vægu gjaldi. Sjá nánar neðar á síðunni.

Safnið í Davíðshúsi er opið alla virka daga á sumrin frá 1. júní til 31. ágúst frá klukkan 13 -17.   800 Krns.
Ef óskað er eftir skoðunarferð á öðrum tímum en opnunartímum, má hringja í síma 462 4162


 

Gestaíbúð

Gestaíbúð er á neðri hæð húss skáldsins frá Fagraskógi að Bjarkarstíg 6, Akureyri. Íbúðin er ætluð rithöfundum og fræðimönnum til afnota í lengri eða skemmri tíma gegn vægu gjaldi, hámark einn mánuð í senn.

Í íbúðinni eru: svefnherbergi, stofa, skrifstofuherbergi, eldhús og baðherbergi. Allur almennur húsbúnaður og lín er til staðar í íbúðinni, ásamt þráðlausri nettengingu.

Auglýst er eftir umsóknum í lista-og fræðimanna íbúðina á haustdögum fyrir komandi ár. Skriflegar umsóknir skulu berast til: Akureyrarstofu sem er opin alla virka daga frá kl. 08:00 – 16:00.

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hof, Strandgata 12, 2 hæð.
Sími: 460 1157
Netfang: akureyrarstofa@akureyri.is

Símanúmer í gestaíbúð er 462 7498

 

 


 
V V 2m / s +
  • Innsíða - Látrar

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.