Gudmanns Minde, Gamli spítali

Gudmanns Minde, Gamli spítali var reistur árið 1835 og var læknisbústaður til að byrja með. Árið 1872 keypti Friðrik Gudmann kaupmaður húsið.  Þetta var

Gudmanns Minde, Gamli spítali

Gudmanns Minde eða Gamli spítali var reistur árið 1835 af Baldvini Hinrikssyni Scagfjord járnsmið. Árið eftir varð húsið læknisbústaður héraðslæknanna Eggerts Johnsens og síðar Jóns Finsens. Í húsinu var jafnframt apótek í upphafi og var það í einu herbergi í norðausturhorni neðri hæðar.  Árið 1872 keypti Friðrik Gudmann kaupmaður húsið, byggði norðan við það einlyfta viðbyggingu, innréttaði það sem spítala og færði bænum að gjöf. Þetta var fyrsti spítalinn á Akureyri og var húsið upp frá því kennt við minningu hans og nefnt Gudmanns Minde. Spítalinn var á efri hæðinni en á þeirri neðri bjó spítalahaldarinn sem var ráðinn til að reka spítalann og sjá um sjúklinga.

Árið 1899 var tekinn í notkun nýr spítali á Akureyri. Þá var húsið selt og þjónaði það sem íbúðarhús í tæp 100 ár. Árið 1994 keyptu Akureyrarbær og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri húsið og afhentu það Læknafélagi Akureyrar og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem hafa staðið fyrir viðgerðum á því undanfarin 15 ár í samráði við Minjasafnið á Akureyri og Húsafriðunarnefnd ríkisins. Í húsinu koma til með að verða sýningar um sögu lækninga og hjúkrunar auk félagsaðstöðu fyrir félögin.


 
V V 2m / s +
  • Innsíða - loftmynd

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.