Hugarflugsfundur um gerð nýrrar menningarstefnu Akureyrarbæjar

Hugarflugsfundur um gerð nýrrar menningarstefnu Akureyrarbæjar Vinna við gerð nýrrar menningarstefnu fyrir Akureyrarbæ stendur nú yfir. Hér má sjá

Hugarflugsfundur um gerð nýrrar menningarstefnu Akureyrarbæjar

Vinna við gerð nýrrar menningarstefnu fyrir Akureyrarbæ stendur nú yfir.  Hér má sjá niðurstöður fimm hópa sem hafa skoðað stöðu menningarmála út frá eftirfarandi fimm listgreinum:  Sviðlistum, sjónlistum, ritlist, menningararfinum (söfn og sögu) og tónlist.

Föstudaginn 4. nóvember verður opinn hugarflugsfundur klukkan 14-18 í Ketilhúsinu og er fólk hvatt til að mæta og taka þátt í að skapa nýja metnaðarfulla stefnu fyrir menningarbæinn Akureyri.  Þeir sem hafa ekki tök á að mæta á fundinn en langar til að leggja sitt af mörkum í hugmyndabanka geta sent sitt framlag á netfangið menningarstefna@akureyri.is

Búið er að vinna ákveða undirbúningsvinnu fyrir fundinn en fimm hópar hafa verið starfandi þar sem unnið hefur verið með fimm eftirfarandi listgreinar:  sviðslistir, sjónlistir, ritlist, menningararfinn (söfn og saga) og tónlist. Fundurinn hefst sem fyrr segir klukkan 14 og er umsjón og skipulag fundarins í höndum SÍMEY.  Í upphafi fundar mun Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu segja nokkur orð.  Í kjölfarið verða niðurstöður hópanna úr listgreinunum fimm kynntar stuttlega.  Þegar því er lokið munu fundargestir velja sér borð út frá listgrein og er takmarkaður fjöldi á hverju borði.  Þarna er komið að því að láta hugann fara á flug og velta fyrir sér fjórum spurningum.  Hópstjóri er á hverju borði og stjórnar umræðum, hver spurning fær 15 mínútur og eru hugmyndirnar settar á gula miða.  Að loknu klukkustundar hugarflugi er tekið korters kaffihlé.  Að loknu hléi  skipta þátttakendur um hóp og komið er að því að fara yfir og setja fram gagnrýni á niðurstöður hópanna sem áður hefur verið unnin og kynnt í upphafi hugarflugsfundarins.  Klukkan 17.30  er komið að því að hópstjórar á borðunum fimm kynna stuttlega sína sýn í samvinnu við stjórnendur fundarins.  Hugarflugsfundinum lýkur klukkan 18 og verða léttar veitingar í lokin.


 
V V 2m / s +
  • Innsíða - Leirutjörn

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.