Karlakór Akureyrar - Geysir

Karlakór Akureyrar - Geysir Æfingar kórsins eru á mánudögum og miðvikudögum frá 20 til 22. Byrjað er að æfa um miðjan september og stendur vertíðin yfir

Karlakór Akureyrar - Geysir

Lón, Hrísalundi 1a
600 Akureyri
Formaður: Snorri Guðvarðsson, sími 863 1419
Heimasíða: www.kag.is
Netfang: netfangi@simnet.is

Allir, sem áhuga hafa á að vera með í skemmtilegum og gefandi félagsskap, ættu að drífa í að hafa samband.

Á Akureyri störfuðu lengi bæði Karlakór Akureyrar (stofnaður 1929) og Karlakórinn Geysir (stofnaður 1922). Kórarnir voru fjandvinir; báðir höfðu sömu markmið en kepptust um félaga og athygli. Þá var upphefð að vera í karlakór og ákveðinn ljómi sveipar gamla kóra og kórfélaga. Hér á árum áður sáu kórarnir jafnvel um að skipuleggja hátíðahöld í bænum þann 17. júní. Kepptu þeir þá í fótbolta, boðhlaupi og ýmsu öðru. Kringum 1980 fór veldi þessara sönghópa dvínandi og kórarnir við það að verða ófærir um að syngja sökum fækkunar. Árið 1990 er ákveðið að sameina kórana og þann 11. október það ár verður til skilgetið afkvæmi þessara tveggja gömlu merkiskóra: Karlakór Akureyrar - Geysir. Fyrsti formaður hins nýja kórs var kjörinn Ingvi Rafn Jóhannsson og söngstjóri Roar Kvam.

Kórinn hefur gefið út tvo geisladiska. Fyrst var það "Vorkliður", sem kom út árið 1997 og syngur Sigrún Hjálmtýsdóttir þar með kórnum. Undirleik á píanó annaðist Richard Simm. ?Á Ljóðsins Vængjum? leit svo dagsins ljós sumarið 2005. Á honum eru lög við ljóð Davíðs Stefánssonar. Fjölmargir einsöngvarar koma við sögu. Ari Jóhann Sigurðsson, Jóhannes Gíslason og Þorkell Pálsson ásamt Erlu sjálfri koma öll úr kórnum svo og tvöfaldur kvartett. Gestir á diskinum eru Óskar Pétursson, Alda Ingibergsdóttir og Hulda Björk Garðarsdóttir.

Aladár Rácz leikur undir á píanó, en margir aðrir hljóðfæraleikarar koma við sögu líka.

KAG_2009

Auk hefðbundinnar dagskrár, sem inniheldur kaffihlaðborð, jólatónleika í einhverju formi, söng við jarðarfarir og ýmis önnur tækifæri, söngferðir ýmist suður eða út á land og vortónleika, hefur KAG bryddað upp á ýmsum nýjungum undanfarin ár. Sett var upp svokallað ?Bítla-prógram? eitt árið, ?Allra meina bót? annað ár, og síðar ?Hæ Hoppsasí? sem var samsafn írskra laga flutt í leikrænum búningi. Veturinn ´08 -´09 er áætlað að setja upp söngskemmtun byggða á perlum frá hinum ástsæla söngvara Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Þá stendur Karlakór Akureyrar - Geysir einnig fyrir kóramóti, sem nefnist ?Hæ! Tröllum á meðan við tórum?. Er það orðinn fastur liður í dagskrá hvers vetrar. Þremur kórum er boðið að taka þátt með KAG hverju sinni og mótið haldið síðla vetrar. Hin besta skemmtun og gott fyrir kóra að hittast og heyra hver í öðrum.

Sumarið 2003 fór KAG í hálfs mánaðar ferð til Ítalíu. Þar var sungið í Feneyjum, Verona, Flórens og Péturskirkjunni í Róm. Ekki hittum við Páfann, en er sagt að hann hafi hlýtt á kórinn með hjálp tækninnar í herbergjum sínum. Mjög heitt var á Ítalíu þetta sumar.

Árið 2007 var farið í tíu daga söngferð til Eistlands og Finnlands. Tæplega hundrað manna hópur fór með beinu flugi til Tallinn og söng á ýmsum stöðum í Eistlandi svo og í Lahti, vinabæ Akureyrar, í Finnlandi. Merkileg ferð fyrir margra hluta sakir og verður lengi í minnum höfð. Fýsir marga félaga að fara aftur til Tallinn og taka þátt í risastóru söngmóti þar.

Í dag er Snorri Guðvarðsson formaður. Aðrir í stjórn eru: Aðalbjörn Pálsson, Hallgrímur Ingólfsson, Hólmkell Hreinsson og Kolbeinn Sigurbjörnsson. Valmar Väljaots tók við sem stjórnandi haustið 2007 og stýrir söngnum af mikilli list. Æfingar kórsins eru á mánudögum og miðvikudögum frá 20 til 22. Byrjað er að æfa um miðjan september og stendur vertíðin yfir fram í maí.

Allir, sem áhuga hafa á að vera með í skemmtilegum og gefandi félagsskap, ættu að drífa í að hafa samband.

                                                          KAG ? Syngjandi sælir


 
V V 3m / s +
  • Innsíða - golf Jón Óskar

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.