Ásabyggð 2
Netfang: hallsson@gmx.net
Heimasíða: www.hallsson.de/projects/projects.html
KUNSTRAUM WOHNRAUM var stofnað af Hlyni Hallssyni og Jan Fehlis og árið 1994. Á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur hafa listamenn haldið sýningar síðan. Eftir því sem fjölskyldan hefur flutt hefur sýningarrýmið einnig flutt sig um set. Flestir myndlistarmennirnir setja upp sýningarnar með heimilisaðstæðurnar í huga og hafa notað hin ýmsu herbergi, eldhús, svefnherbergi, barnaherbergi, baðherbergi, ganga, stiga, svalir, garð og svo framvegis þó að oftast séu sýningarnar í stofunni. Í Ásabyggðinni eru sýningarnar í stofu/eldhúsi.




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.