Kvennakór Akureyrar

Kvennakór Akureyrar Kvennakór Akureyrar var stofnaður árið 2001 en fyrstu drög að kórnum ná aftur til ársins 1997 þegar hópur kvenna tengdar

Kvennakór Akureyrar

Kristnes 7
601 Akureyri
Sími: 463 1363, 899 6297
Netfang: kvak@kvak.is
Heimasíða: http://www.kvak.is

Kvennakór Akureyrar var stofnaður á fyrstu mánuðum ársins 2001 en fyrstu drög að kórnum ná aftur til ársins 1997 þegar hópur kvenna tengdar íþróttafélaginu KA ákvað að stofna blandaðan kór sem syngi aðallega létta dægurtónlist. Illa gekk að fá karlaraddir í kórinn, og var honum þá breytt í kvennakór. Veturinn 2000-01 voru aðeins 16 kórfélagar starfandi í KA kórnum og því var ákveðið að kynna starfsemina með söng á kaffihúsinu Bláu Könnunni og auglýsa um leið eftir kórfélögum í nýjan kvennakór. Viðbrögð voru á þann veg að kórfélögum fjölgaði í 100 manns á næstu vikum.

Fyrsti formaður þessa nýja kórs var Dóra S. Jónasdóttir og stjórnandi var Björn Leifsson til vors 2003. Þá tók við stjórn Þórhildur Örvarsdóttir og starfaði í tvö ár en árin 2005 til 2008 stjórnaði Arnór B. Vilbergsson. Jaan Alavere var stjórnandi haustið 2008 en í ársbyrjun tók Daníel Þorsteinsson við. Í kórnum starfa að jafnaði um 70 konur frá Akureyri og nærsveitum og núverandi formaður er Snæfríð Egilson.

Kvennakór Akureyrar heldur aðaltónleika á Akureyri á vordögum ár hvert, auk þess jólatónleika þar sem kórinn syngur, í samvinnu við aðra kóra, jólalög til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar. Einnig er sungið við ýmis önnur tækifæri. Kórinn flytur íslensk og erlend lög, þjóðlög, negrasálma, lög úr söngleikjum og fleira og yfirleitt er dagskráin á léttari nótunum.

Fyrir lok hvers starfsárs hefur kórinn farið í styttri ferðalög og haldið tónleika í nágrannasveitum eða öðrum bæjarfélögum. Sumarið 2005 lagði kórinn upp í sína fyrstu utanlandsferð og hélt til Slóveníu. Tókst sú ferð afar vel, haldnir voru þrennir tónleikar og landið skoðað vítt og breitt. Sumarið 2008 var svo farið til Eistlands, einnig haldnir þrennir aðaltónleikar og landið skoðað undir frábærri leiðsögn heimamanna.

Æfingar kórsins eru einu sinni í viku á sunnudögum frá kl. 17?19 frá því í september og fram í maí og aukaæfingar eftir þörfum. Æfingabúðir eru að jafnaði haldnar tvisvar yfir veturinn, einu sinni á hvorri önn.

Kórinn gaf út sinn fyrsta geisladisk vorið 2008 og hlaut hann nafnið Sólardans á vori. Upptökur og hljóðblöndun var í höndum Sigurðar Rúnars Jónssonar en undirleikarar voru Jaan Alavere og Daníel Þorsteinsson.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á heimasíðu Kvennakórs Akureyrar http://www.kvak.is og netfang kórsins er kvak@kvak.is.


 
V V 3m / s +
  • Innsíða - golf Jón Óskar

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.