Leikfangasýningin Friðbjarnarhúsi

Leikfangasýningin Friðbjarnarhúsi Í Friðbjarnarhúsi er sýning á leikföngum í eigu Guðbjargar Ringsted.  Leikföngin eru öll frá síðustu öld.  Á efri hæð

Leikfangasýningin Friðbjarnarhúsi

Aðalstræti 46
600 Akureyri
Sími:  863 4531
Netfang:  ringsted@akmennt.is
Heimasíða:  Leikfangasýningin er með heimasíðu á http://www.facebook.com/ undir heitinu Leikföng frá liðinni öld.

Í Friðbjarnarhúsi er sýning á leikföngum í eigu Guðbjargar Ringsted.  Leikföngin eru frá síðustu öld og má sjá fjölda brúða, bíla og annarra gersema á sýningunni.  
Á efri hæð hússins má sjá fundarherbergi Góðtemplarareglunnar sem gaf Akureyrarbæ húsið til varðveislu.

Leikfangasafn4

Friðbjarnarhús stendur í Innbænum, elsta hluta Akureyrar og er talið að það hafi verið byggt árið 1856. Húsið er kennt við Friðbjörn Steinsson, bókbindara, bóksala og bæjarstjórnarmann til fjölda ára. Á heimili Friðbjarnar var Góðtemplarareglan á Íslandi stofnuð og keypti reglan húsið árið 1961 til að koma þar á fót minjasafni. Húsið var friðað samkvæmt þjóðminjalögum árið 1978 og hefur húsfriðunarsjóður veitt viðurkenningar fyrir endurbætur og varðveislu þess.

Opnunartími:

Frá 1. september er opið á laugardögum frá kl. 14:00-16:00. Hægt að panta skoðun utan þess tíma.
Sumar opnunartími sýningarinnar er alla daga milli klukkan 13.00 - 17.00.

Vinsamlegast hafið samband í síma 863 4531 til þess að skoða safnið utan opnunartíma.

Verð (2011):
Fullorðnir kr 600
Elli- og örorkuþegar kr 300
Börn 15 ára og yngri: frítt

Leikfangasafn3

Leikfangasafn6


 
V V 3m / s +
  • Innsíða - Látrar

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.