Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Miðasölusími: 460 0200
Heimasíða: www.leikfelag.is
Starfsemi Leikfélags Akureyrar er viðamikil enda hlutverk þess að snerta stóran hóp áhorfenda. LA setur upp þrjár til fjórar
leiksýningar árlega auk þess að standa fyrir komu gestasýninga til Akureyrar. Leikfélagið stendur einnig fyrir öflugu barnastarfi sem felst í
leiklistarskóla og námskeiðum. Húsakynni Leikfélagsins er leigð út og er hægt að fá upplýsingar hjá
leikfélaginu.
Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Saga Leikfélagsins spannar rúm öld, en félagið varð
atvinnuleikhús árið 1973. Starfsemin er í hjarta Akureyrar í fallegu nýuppgerðu leikhúsi, Samkomuhúsinu, sem tekur 210 manns í
sæti. Samkomuhúsið er hefðbundið leikhús með sviði, upphækkuðum sal og svölum. Þann 16. febrúar 2006 opnaði
leikhúsið nýtt leikrými sem það nefnir einfaldlega Rýmið. Leikfélagið sýnir einnig í menningarhúsinu Hofi.
Verkefnaskrá leikhússins hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt, klassísk íslensk og erlend verk, ný íslensk og erlend verk,
barnaleikrit og söngleikir. Nú einbeitir leikhúsið sér að nútímaleikritun. Árlega sviðsetur leikhúsið fjórar til
sjö leiksýningar á eigin vegum og í samstarfi við aðra auk ótal styttri sýninga og smærri viðburða. Upplýsingar um leiksýningar.
Flýtilyklar
Leikfélag Akureyrar
Leit
Svæði
V 3m / s
+5°



Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.