Miðpunktur listalífsins á Akureyri er í Kaupvangsstræti, nánar tiltekið í Grófargili sem í daglegu tali er nefnt Listagil.
Á árum áður var þarna umfangsmikil iðnaðarstarfsemi í öllum byggingum en smám saman hvarf sú starfsemi og eftir stóðu húsin tóm. Framsýnt fólk fékk þá hugmynd að stuðla að því að húsin yrðu lögð undir ýmsa listastarfsemi og sú varð raunin. Listalífið blómstrar í Grófargili.




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.