Listasumar á Akureyri (júní - ágúst)

Listasumar á Akureyri (júní - ágúst) Listasumar er fyrir löngu orðið að föstum lið í sumarflórunni á Akureyri og setur mikinn og hátíðlegan svip á bæinn.

Listasumar á Akureyri (júní - ágúst)

 Listasumar á Akureyri er ómissandi þáttur í sumarflóru Akureyrarbæjar og setur líflegan og hátíðlegan svip á bæinn. Fjölbreytt dagskrá Listasumars frá Jónsmessu að Akureyrarvöku þar sem boðið er upp á yfir hundrað viðburði, er mikilvægur og ómissandi þáttur í menningarlífi á svæðinu bæði fyrir heimamenn og ferðalanga.

Fastir dagskrárliðir Listasumars eru djasskvöldin á Heitum fimmtudögum og hádegistónleikarnir á föstudögum í hverri viku og Sumartónleikar í Akureyrarkirkju á sunnudagseftirmiðdögum í júlímánuði. Auk myndlistasýninga í Listasafninu, Ketilhúsinu og Deiglunni eru settar upp fjölbreyttar sýningar í galleríum og vinnustofum á svæðinu.

Söfnin á Akureyri, í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum eru hvert um sig með einstakar sýningar og bjóða upp á ýmsa viðburði.

Fjölmargir aðrir viðburðir eru undir hatti Listasumars sem nánar eru kynntir í bæklingi Listasumars sem gefinn er út á íslensku og ensku.

Menningarmiðstöðin Listagili
Listasumar á Akureyri
Valdís Viðarsdóttir
forstöðumaður og framkvæmdastjóri
Sími/Tel: 466 2609
listagil@listagil.is
http://www.listagil.akureyri.is/

 


 
V V 3m / s +
  • Innsíða - loftmynd

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.